Innlent

Hrottaleg misþyrming á hundi kærð

Jóhanna Sigþórsdóttir skrifar
Kristjana Margrét Svansdóttir ásamt Lúkasi.
Kristjana Margrét Svansdóttir ásamt Lúkasi.

Eigandi hunds sem týndist á Akureyri um hvítasunnuna hefur nú kært hrottalega misþyrmingu á hundinum til lögreglu. Að sögn eigandans urðu grimmdarlegar aðfarir hundinum að bana.

Hundurinn Lúkas, sem er hreinræktaður af tegundinni Chinese crested, strauk að heiman um hvítasunnuna.

„Hann var nýkominn úr geldingaraðgerð og því gat ég ekki haft hann með mér í vinnuna eins og ég er vön,“ segir eigandinn, Kristjana Margrét Svansdóttir. 

Meðan hún skaust frá, í um klukkustund, vaknaði Lúkas, enn hálfvankaður af svæfingunni, og gat kraflað sig upp að glugga þar sem hann komst út. Hópur fólks leitaði hans vikum saman, auk þess sem Kristjana hengdi upp auglýsingar um allan bæ þar sem háum fundarlaunum var heitið. Af og til spurðist til Lúkasar en hann var eldstyggur og alltaf þotinn í burtu þegar Kristjana kom á staðinn.

„Á bíladögum sem haldnir voru í bænum 15.-17. júní hafði ég svo spurnir af því að hópur stráka hefði fundið Lúkas. Ég vissi ekki hverjir þetta voru en varð mjög glöð, því ég hélt þeir myndu koma honum til mín, þar sem auglýsingarnar mínar voru svo víða.“

En á því varð bið. Hins vegar fór að berast orðrómur um afdrif Lúkasar, þess efnis að sést hafi til hóps pilta um og undir tvítugt með hann. Einn þeirra hafi sett hundinn í íþróttatösku og þeir síðan sparkað töskunni á milli sín þar til hundurinn var hættur að veina. Kristjana kveðst hafa fengið staðfest sannleiksgildi þessa. Í gær fór hún og kærði athæfið til lögreglunnar á Akureyri. Þá hafði hún safnað gögnum sem hún lagði fram.

lúkas Þannig leit hann út, hundurinn sem týndist á Akureyri.

„Nú vil ég bara fá Lúkas til að geta jarðað hann,“ segir Kristjana. 

„Ég get ekki hugsað mér að hann liggi einhvers staðar í reiðileysi.“

Einn meintra þátttakenda í misþyrmingunum, sem býr í Reykjavík, er með opna bloggsíðu þar sem hótunum um aðför og líkamsmeiðingar og fúkyrðum af verstu tegund rigndi inn í gær.

„Ég er persónulega búinn að setja menn á þig… ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð,“ mátti meðal annars lesa á síðunni. Og einnig: „Vona að þeir sem hafa hótað þér standi við hótanir sínar.“

Ekki náðist í umræddan pilt í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Faðir hans vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið.


Tengdar fréttir

Lúkasar minnst með kertavökum í kvöld

Kertavaka til minningar um hund sem var drepinn með hrottalegum hætti á Akureyri á dögunum verður haldin í Reykjavík, Akureyri og á Vopnafirði í kvöld. Miklar umræður hafa spunnist á Netinu vegna málsins en þar er því haldið fram að ungir drengir hafi sett hundinn ofan í íþróttatösku og sparkað töskunni á milli sín þar til hann var allur.

Fjöldi manns á minningarvöku um Lúkas

Yfir hundrað manns komu saman á Geirsnefi í Reykjavík þar sem haldin var kertavaka til að minnast hundsins Lúkasar sem drepinn var á hrottalegan hátt á Akureyri á dögunum. Ungir piltar settu hundinn sem hafði villst frá eiganda sínum ofan í íþróttatösku og spörkuðu henni á milli sín þar til hann var allur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×