Innlent

Hundruð milljóna króna tjón

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Rjúfa þurfti þakið af 800 bar til að slökkva eldinn.
Rjúfa þurfti þakið af 800 bar til að slökkva eldinn. mynd/ Einar Ársæll
Tjónið vegna eldsins á Selfossi nemur hundruðum milljóna króna, segir Árni Steinarsson í samtali við Vísi. Árni rekur 800 bar ásamt félaga sínum Eiði Birgissyni. Eldurinn kom upp í plaströraverksmiðjunni Set og breiddist svo út í húsnæði 800 bars. Árni segir að hann og Eiður eigi húsnæði veitingastaðarins sjáflir en auk þess hafi verið þarna inni dýrir munir sem fylgi rekstri sem slíkum. „Þetta eru hljóðkerfi og sjónvörp og bara það sem fylgir þessu," segir Árni.

„Þetta er gríðarlegt tjón, vöruskemma sem brann hjá Set og svo allt þetta," segir Árni. Aðspurður segir hann að ekki verði teknar neinar ákvarðanir um það hvort 800 bar muni opna í nýju húsnæði. Eiður segir hins vegar í samtali við DFS að hann sé harðákveðinn í að byggja upp nýjan bar. „Ég er ákveðin í að byggja upp nýjan bar, þar er engin spurning í mínum augum," sagði Eiður.

Aðspurður segir Árni í samtali við Vísi að bruninn sé sjokk fyrir sig. „Já já, þetta er það," segir hann. Árni segir að þeir félagarnir séu tryggðir alveg upp í topp hjá Sjóvá, en hann veit ekki hvar plaströraverksmiðjan var tryggð.

Grunur leikur á að rafmagnsbilun hafi orðið kveikjan að eldinum.


Tengdar fréttir

Eldurinn breiðist út - 800 bar logar líka

Eldurinn sem kom upp í Set röraverksmiðju rétt eftir klukkan eitt í dag er nú farinn að breiðast út og hefur nú fest sig í þakinu á skemmtistaðnum 800 bar, sem er í samtengdu húsi við röraverksmiðjuna. Að sögn Kristjáns Einarssonar slökkviliðsstjóra sem er á staðnum er nú verið að rjúfa þakið á barnum og freista menn þess að koma í veg fyrir að eldurinn nái að læsa sig í næsta hús. Þar er TRS rafeindaþjónustan til húsa. Nærliggjandi fyrirtæki hafa verið rýmd vegna mikils reyks sem gengur yfir svæðið. Að sögn Kristjáns er vindátt þó tiltölulega hagstæð með tilliti til íbúabyggðar. Slökkvilið frá höfuðborgarsvæðinu hefur sent tvö slökkviliðsbíla til Selfoss til að aðstoða slökkviliðsmenn. Allt tiltækt slökkvilið af nærliggjandi svæðum hefur verið kallað til, frá Selfossi, Hveragerði og Þorlákshöfn. Björgunarsveitin á Selfossi er að stjórna umferð þar sem fjöldi ökumanna er að reyna að sjá eldinn.

Verksmiðjan alelda þegar starfsmenn komu úr hádegismat

Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set röraverksmiðju, segir að eldurinn hafi blossað upp á mjög stuttum tíma. Starfsfólkið hafi verið í hádegismat í mötuneytinu sem er í öðru húsi og um hálftíma síðar hafi verksmiðjan verið alelda.

Röraverksmiðja á Selfossi alelda

Eldur er laus í Set röraverksmiðju á Selfossi. Samkvæmt sjónarvotti sem hafði samband við fréttastofu er húsið alelda og mikill reykur kemur frá húsinu. Lögreglan á Selfossi hefur ekki frekar upplýsingar um eldsvoðann. Reykurinn frá húsinu sést langar leiðir.

Telja að búið sé að ná tökum á eldinum

Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu segist telja að búið sé að ná tökum á eldinum sem logað hefur í dag. Geymsluhúsnæði hjá SET röraverksmiðjunni brann, sem og skemmtistaðurinn 800 bar. Bæði húsin eru brunninn til kaldra kola en Kristján segir að komið hafi verið í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í sjálfa röraverksmiðjuna, eins og leit út fyrir um tíma.

800 bar brunninn til kaldra kola

800 bar á Selfossi er brunninn til grunna. Slökkviliðsmenn reyna að verjast því að eldurinn breiðist enn frekar út og segir slökkviliðsstjórinn á Selfossi að útlitið sé betra en það var fyrir tíu mínútum síðan. Nú sé ítil hætta sé nú á að eldurinn breiðist út í húsnæði TRS.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×