Viðskipti innlent

ÍLS lækkar vexti á íbúðalánum

Íbúðalánasjóður (ÍLS) hefur ákveðið að lækka vexti á íbúðalánum sínum. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Þessi vextir voru áður 4,5% og 5%.

Í tilkynningu segir að samkvæmt lögum um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 10. mars s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,48%.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 11. mars 2011.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×