Innlent

Jón Gnarr í dragi - myndband

Uppátæki Jóns Gnarr, borgarstjóra, að mæta sem klæðskiptingur við setningu Hinsegin daga í gær vakti mikla lukku meðal viðstaddra og hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. BBC var meðal annars með frétt um Jón Gnarr á forsíðu bresku fréttastofunnar í dag. Hún var um tíma sjötta mest lesna fréttin.

Jón kom óvænt fram í gær klæddur í kjól með blómamynstri og tösku. Þá var hann með hárkollu og rauðan varalit.

Hinsegin dagar standa fram á sunnudag og mun gleðigangan vera gengin niður Laugaveginn á morgun.

Hægt er að sjá Jón í gær í myndbandinu hér að ofan.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×