Kláruðu kvótann á tólf dögum 24. maí 2013 06:00 búnir með kvótann Á réttu dýpi fæst afburða góður karfi á Hryggnum. fréttablaðið/valli fréttablaðið/valli
Þerney RE 101, skip HB Granda, er á landleið eftir að hafa klárað úthafskarfakvóta sinn á tólf dögum. Hið sama á við um Örfirisey RE en hin tvö skip HB Granda sem stundað hafa úthafskarfaveiðarnar, Helga María AK og Venus HF, eru enn á miðunum. Frá þessu er sagt á heimasíðu fyrirtækisins en vart þarf að taka fram að aflabrögð eru frábær á Reykjaneshrygg þar sem tugir skipa stunda veiðarnar við góðar aðstæður. Að sögn Kristins Gestssonar, skipstjóra á Þerney, þétti karfinn sig í stóra torfu eftir rólega byrjun á veiðunum. „Í raun erum við að tala um svokallaða aðgæsluveiði. Það þýðir að við höfum orðið að gæta þess að stytta holin til þess að fá ekki of mikinn afla,“ segir Kristinn. Aðstæðurnar á miðunum úti við 200 mílna lögsögumörkin eru nú allt aðrar og betri en þær voru fyrir réttu ári þegar íslensku skipin máttu hefja veiðar. Í hálfan mánuð fyrir þann tíma var mokveiði en það er mat manna að kólnun sjávar eftir 10. maí í fyrra hafi orðið til þess að karfinn hafi dreift sér og leitað annað.- shá
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira