Íslenski boltinn

Kristinn dæmir á Emirates Cup

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristinn Jakobsson
Kristinn Jakobsson
Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson hefur fengið boð um að koma til Englands og dæma á hinu sterka Emirates Cup. Þetta kom fram í viðtali við Gylfa Þór Orrason í þættinum fótbolti.net á X-inu í dag.

Það er Arsenal sem heldur mótið en önnur lið sem taka þátt eru Boca Juniors, PSG og NY Red Bulls.

Þetta er mikill heiður fyrir Kristinn sem hefur lengi verið með bestu dómurum landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×