Viðskipti innlent

Laun hækka á vinnumarkaði - skrifstofufólk hækkaði mest

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,0% hærri á þriðja ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,6% en laun opinberra starfsmanna um 0,7% að meðaltali.

Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,0%, þar af 7,6% á almennum vinnumarkaði og 2,2% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 3,1% en laun iðnaðarmanna minnst eða um 2,3%. Frá fyrra ári hækkuðu laun á bilinu 6,9% til 8,6%, mest hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks en stjórnenda minnst.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 3,5% en laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 1,8%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum 9,3 % en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 5,9%.

Vísitala launa byggir á meðaltali reglulegra launa í hverjum ársfjórðungi. Áhrifa kjarasamningsbundinna launabreytinga sem komu til framkvæmda undir lok annars ársfjórðungs 2010 má því jafnframt greina í samanburði launa á öðrum og þriðja ársfjórðungi ársins.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×