Erlent

Lögreglan fann 12 lík í brunni í Mexíkó

Lögreglan í Nuevo Leon í Mexíkó hefur fundið 12 lík í brunni í bænum Mina. Staðfest hefur verið að fjögur þeirra eru af meðlimum hljómsveitarinnar Kombo Kolombia sem rænt var fyrir síðustu helgi.

Talið er að öll líkin séu af meðlimum hljómsveitarinnar. Lögreglan segir að viðkomandi hafi allir verið skotnir en einnig eru merki um misþyrmingar á líkunum.

Nuevo Leon er miðstöð glæpagengja og talið er að eitt þeirra hafi rænt hljómsveitinni. Hinsvegar er ekkert vitað um ástæðurnar fyrir þessu mannráni og morðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×