Meirihluti íbúa í Vestmannaeyjum vill ekki hótel við Hástein 23. maí 2013 11:44
Meirihluti íbúa í Vestmannaeyjum er andvígur því að hótel rísi við Hástein. Íbúakönnun sýnir að 56% eru andvígir hótelinu en 44% eru meðmæltir því. Alls voru greidd 1041 atkvæði og var þátttakan því um 33%. Í tilkynningu segir að spurningin á atkvæðaseðlinum var eftirfarandi: "Vilt þú að Vestmannaeyjabær veiti byggingaleyfi fyrir hótel það sem kynnt hefur verið á lóðinni í Hásteinsgryfjunni?" og voru svarmöguleikarnir "Já" og "Nei". Íbúakönnunin var ráðgefandi fyrir bæjarstjórn og mun bæjarstjórn nú taka sér tíma til þess að fara yfir málið með niðurstöðu könnunarinnar að leiðarljósi. Jafnframt verður fundað með lóðarumsækjendum og þeim gerð grein fyrir niðurstöðu íbúakönnunarinnar og kannaður vilji þeirra til frekari samvinnu. „Ég er fyrst og fremst afar ánægður með þátttökuna. Um 33% allra þeirra sem rétt hafa til þátttöku völdu að hafa áhrif á sitt nærumhverfi á þennan máta. Það sýnir að bæjarstjórn tók rétta ákvörðun þegar hún valdi að fara þá leið að leita til íbúa með þetta verkefni. Þátttaka var því mun meiri en ég þorði að vona,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmanneyja um könnunina. „Niðurstaðan kemur mér ekki mjög á óvart. Um leið og Eyjamenn hafa einbeittan og skýran vilja til að þróa hjá sér öfluga ferðaþjónustu þá verður það að vera í sátt við heimamenn og umhverfi þeirra. Ég lít sem svo á að þetta leggi enn ríkari kröfu á okkur í bæjarstjórn um að tryggja lóðir til framkvæmda sem eru þess eðlis að framsæknir aðilar í ferðaþjónustu geti þar komið upp öflugri þjónustu og heimamenn verið sáttir við staðsetninguna.“
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira