Morðið í London talið hryðjuverkaárás 24. maí 2013 01:00 Árás Frá vettvangi morðsins í Lundúnum. Nordicphotos/Afp
Sterkar vísbendingar eru um að morðið sem átti sér stað á miðvikudaginn í suðausturhluta Lundúna hafi verið hryðjuverkaárás. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, boðaði til neyðarfundar í gær vegna árásarinnar til að ræða viðbrögð við henni og ótta við hryðjuverk í Lundúnum. Boris Johnson borgarstjóri hefur beðið fólk um að halda ró sinni og segir árásina hafa verið einstakt tilvik. Árásin átti sér stað seinnipartinn á miðvikudaginn þegar tveir menn réðust á annan með kjötöxum og myrtu hann. Vegfarandi tók annan árásarmannanna upp á myndband skömmu eftir árásina þar sem hann sést hrópa pólitískar fullyrðingar um „auga fyrir auga“ með blóðugar hendur og sveiflandi kjötexi. Hann segir breska hermenn drepa múslíma á degi hverjum og sver við Allah að „við“ munum aldrei hætta að berjast við „ykkur“. Lögreglan handtók árásarmennina tvo eftir átökin og voru þeir báðir fluttir á sjúkrahús með skotsár, annar alvarlega særður. Fórnarlambið var breskur hermaður og hefur öryggi í kringum svæði hersins í borginni verið hert. Bresk yfirvöld segja að árásin hafi verið knúin áfram af hugmyndafræði öfga múhameðstrúar. Múslímskir söfnuðir voru fljótir að fordæma árásina, þeir sögðu ekkert réttlæta hana og hvöttu lögregluna til að reyna að draga úr spennunni. - ig
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira