Enski boltinn

Nýi eigandi Liverpool: Ætlar að ekki að selja stjörnuleikmenn liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
John Henry, eigandi Liverpool.
John Henry, eigandi Liverpool. Mynd/Nordic Photos/Getty
John Henry, nýi eigandi Liverpool, hefur fullvissað stuðningsmenn félagsins að bestu leikmennirnir verða ekki seldir. Spánverjarnir Fernando Torres og Pepe Reina hafa verið mikið orðaðir við önnur félög á síðustu vikum.

„Við ætlum okkur að styrkja leikmannahópinn en ekki grafa undan honum," sagði John Henry en eignarhaldsfélag hans, New England Sports Ventures, keypti Liverpool af Tom Hicks og George Gillett Jr fyrr í þessum mánuði.

Liverpool er enn í fallsæti og hefur ekki byrjað verr í 50 ár. „Sögur um að okkar bestu leikmenn séu á förum eru bæði ósannar og skaðlegar. Ég átta mig samt á því að það er bara vanalegt að sjá svona vangaveltur um bestu leikmennina," sagði John Henry.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×