Ofurmenni hlaupa upp Esjuna Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. maí 2013 15:31 Fjórir hlauparar hlupu 10 sinnum upp og niður Esju á Esja Ultra í fyrra. Mynd/Esja Ultra
Esja Ultra ofurhlaupið verður haldið 22. júní næstkomandi. Boðið verður upp á fjórar vegalengdir þar sem fólk getur hlaupið 1, 2, 5 eða 10 hringi upp að Steini innan tímamarka. Esja Ultra var haldið í fyrsta skipti í fyrra og gekk vonum framar að sögn Önnu Láru Steingrímsdóttur, eins skipuleggjenda hlaupsins. Þar fóru 55 manns tvær ferðir upp og niður, 21 kláruðu 5 ferðir og 4 einstaklingar hlupu 10 ferðir upp og niður Esjuna. Vilja kynna fólk fyrir hlaupaheiminum Anna Lára er spennt fyrir hlaupinu „Þetta er náttúrlega algjört ofurhlaup sem tekur allan daginn. Þú þarft að vera í nokkuð góðu formi til að hlaupa tvo hringi eða fleiri svo við ákváðum að bæta við möguleikanum á að fara bara einn og skorum á alla að láta reyna á eina ferð. Anna segir undirbúning þeirra sem fara fimm til tíu ferðir geta verið allt að ár. „Þetta er mikil áskorun til alvöru hlaupara. Þú þarft að vera í mjög góðu formi og hafa mikla reynslu í hlaupinu. Þetta er eitt erfiðasta hlaup sem hægt er að fara hérna heima þar sem helmingur vegalengdarinnar er upp á móti, en einn esjuhringur er 7 km vegalengd. Sá sem hleypur tíu hringi er þá að hlaupa 70 km. Þetta eru hálfgerð ofurmenni.“ Aðspurð um hvort veðrið geti ekki sett strik í reikninginn segist Anna hafa alla trú á að veðurguðirnir verði með þeim í liði. „Það var svo frábært veður í fyrra að við stólum bara á sól og blíðu.“ Nánari upplýsingar um skráningu má finna á heimasíðu Esja Ultra.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira