Ómetanlegur stuðningur við börn alkóhólista 21. maí 2013 10:15 Anna Flosadóttir fékk afhentan fyrsta lykilinn frá Guðrúnu Rögnu Garðarsdóttur, framkvæmdastjóra Atlantsolíu. Fréttablaðið/Stefán
SÁÁ hefur undirritað samning við Atlantsolíu með það að markmiði að styðja við Barnahjálp SÁÁ sem stofnuð var í síðustu viku. Samningurinn felur í sér að tvær krónur af hverjum lítra sem dælt er af bensíni með sérstökum SÁÁ-lykli Atlantsolíu renni til Barnahjálpar SÁÁ. Auk þess fylgja ýmis fríðindi og afsláttarkjör. Af þessu tilefni afhenti Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, Önnu Flosadóttur, kennara í mynd- og leiklist við Hlíðaskóla í Reykjavík, fyrsta SÁÁ-lykilinn. Anna hefur unnið með börnum alla sína ævi og þykir málefnið brýnt. „Við berum öll ábyrgð á því að hjálpa börnunum sem búa við slæmar aðstæður og þess vegna styð ég við Barnahjálp SÁÁ með þessum hætti,“ sagði Anna aðspurð. Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, er ánægður með samninginn. „Þessi samningur við Atlantsolíu gefur fólki sem vill styðja Barnahjálpina tæki til að veita þann stuðning á auðveldan og hagkvæman máta. Sá stuðningur mun hjálpa SÁÁ að veita börnum áfram sálfræðiþjónustu og hugsanlega að auka enn þjónustu samtakanna við börn alkóhólista í framtíðinni.“ Barnahjálp SÁÁ var stofnuð á uppstigningardag, þann 9. maí síðastliðinn, og hefur það að markmiði að aðstoða börn alkóhólista. Talið er að um 6.000 börn á Íslandi þjáist af völdum áfengis- og vímuefnasýki foreldra sinna. Lykilinn er hægt að nálgast á heimasíðu Atlantsolíu.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira