Körfubolti

Pavel: Íslendingar eru alltaf háværastir hvert sem þeir fara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij og Jón Arnór Stefánsson ræða málin á æfingu í gær.
Pavel Ermolinskij og Jón Arnór Stefánsson ræða málin á æfingu í gær. Vísir/Valli
Pavel Ermolinskij býst við miklu af íslensku áhorfendunum sem ætla að fjölmenna í Mercedes Benz höllina í Berlín í dag og fylgjast með leik Íslands og Þýskalandi á Evrópumótinu í körfubolta.

„Þetta er svakaleg höll og íslensku áhorfendurnir geta átt von á því að það fari vel um þau þarna. Við leikmennirnir fáum svo sem ekki að upplifa það en þetta er mjög falleg höll og maður komst í ákveðna stemningu þegar maður kom þarna inn og sá stærðina á þessu og ímyndaði sér fulla höll á morgun.  Það var svolítið yfirþyrmandi en góð tilfinning. Ég hef ekki upplifað þetta áður,“ segir Pavel.

Það var gaman að vera Íslendingur á Amsterdam Arena á fimmtudagskvöldið og það verður vonandi gaman að vera Íslendingur í Berlín í dag.

„Ég heyrði að Íslendingarnir hafi átt völlinn í Hollandi í gær og ég býst ekki við minna af körfuboltaliðinu. Íslendingar eru alltaf háværastir hvert sem þeir fara, mestir og bestir. Það breytist aldrei og ég á því ekki von á öðru en að við eignum okkur salinn,“ segir Pavel. Hverja þarf að stoppa hjá þýska liðinu í dag?

„Það er einn þarna stór sem er í NBA, Nowitzki einhver,“ segir Pavel glottandi en bætir svo við:  

Markmiðið er að hlaupa eins og hundar og stoppa alla

„Þetta eru allt saman frábærir leikmenn hjá öllum þessum þjóðum enda eru þetta bestu körfuboltaþjóðirnar í Evrópu. Það er enginn þarna sem maður getur eitthvað gleymt. Við munum að sjálfsögðu setja meiri áherslu á suma leikmenn en aðra en markmiðið er að hlaupa um eins og hundar og stoppa alla,“ segir Pavel.

„Þetta er körfubolti. Eftir fyrstu mínútuna, eftir fyrstu körfuna okkar, fyrsta stoppið eða eitthvað gott sem við gerum þá áttum við okkur á því að þetta er sami leikur og við höfum alltaf spilað. Þeir eru að spila sama leik og síðast þegar ég gáði þá spila þeir með tvær hendur og tvo fætur og nota sama bolta. Um leið og við gerum eitthvað gott þá held að ég vöknum og hugsum: Nú spilum við strákar,“ segir Pavel.

Íslensku strákarnir eru búnir að bíða nóg og vilja fara að spila. Fyrsti leikurinn hefst klukkan 13.00 í dag að íslenskum tíma.

„Við erum búnir að vera hérna svo lengi að menn vilja að fara að spila. Það er komin smá óþreyja í mannskapinn en ég hugsa í dag reyni menn að láta daginn líða hratt annaðhvort með því að spila á spila, horfa á sjónvarpið eða lesa bækur eins og ég,“ segir Pavel kannski meira í gríni en alvöru.


Tengdar fréttir

Hörður: Allt mér að þakka að Haukur er hér í dag

Fréttamaður Vísis í Berlín hitti á landsliðsmennina Hauk Helga og Hörð Axel fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi á morgun. Strákarnir voru léttir í lund og rifjuðu meðal annars upp þegar Hörður var þjálfari Hauks í Fjölni.

Jón Arnór: Ætlum að spila með öllu okkar hjarta

Jón Arnór Stefánsson og félagar í íslenska landsliðinu í körfubolta spila sögulegan leik í Berlín í dag eða fyrsta leik íslenska körfuboltalandsliðsins í úrslitakeppni EM. Eurbasket hefst í dag með leik Þýskalands og Íslands.

Hlynur: Þeir labba ekki á vatni frekar en við hinir

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðið mun leiða sitt lið inn í sögulegan leik á morgun þegar Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta leik liðsins á Eurobasket.

Pavel: Við unnum ekkert lottó til að vera hérna

Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi íslenska körfuboltalandsliðsins, er klár í slaginn á Evrópumótinu og segir að íslenska liðið eigi fyllilega skilið að keppa við þá bestu í ár.

Ljóðskáldið Axel Kárason

Ísland hefur leik á EM í körfubolta á morgun þegar liðið mætir Þýskalandi í Mercedes Benz-höllinni í Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×