Ræktendur þurfa að passa sig á hvítum lit 23. maí 2013 06:00 Íslenskir hundar Stolt móðir með fimm pilta, suma snögga og aðra loðna. Í nýrri grein í Sámi eru ræktendur varaðir við því að hvítur litur á höfði eða yfirgnæfandi hvítur litur geti valdið vandamálum.Fréttablaðið/Arndís
Hvítum lit á feld hunda geta fylgt alvarleg vandamál. Í grein um ræktun íslenska fjárhundsins í nýjasta tölublaði Sáms, blaðs Hundaræktarfélags Íslands, er sérstaklega varað við því að hvítur litur verði ríkjandi á hundi, að minnsta kosti helmingur hundsins ætti að hafa lit. „Munið að hvítt er ekki litur heldur skortur á litarefni,“ segir í greininni, sem Wilma Roem, ritar. Bent er á að vandamál sem tengiast skorti á litarefni séu heyrnarleysi, blinda (blá augu) og viðkvæmni fyrir útfjólubláum geislum. „Því þurfum við að fara varlega í ræktun þegar mikið hvítt er til staðar í ræktunardýrum, sérstaklega á höfði,“ segir í greininni. Ágúst Ágústsson, fyrrverandi formaður Deildar íslenska fjárhundsins, segir ljóst að ræktendur þurfi að gæta að litasamsetningu hunda sinna. Hann segir að jafnvel þó svo að hálfur hundurinn hafi lit, þá geti hvítur haus valdið vandamálum á borð við heyrnarleysi. „Og við viljum ekki rækta það. Ef svoleiðis hundur fer á sýningu þá er það galli,“ segir Ágúst, en bætir um leið við að slíkir hundar hafi hér lengi þekkst. „Bændur vildu oft hafa hvítt í þeim þannig að þeir sæju þá vel í brekkunum, í stað einlits hundar sem hyrfi inn í landslagið.“ Þeir hafi þá ekki vitað að hvíti liturinn, eða litleysið, gæti valdið heyrnarleysi. Ágúst segir að þótt íslenski fjárhundastofninn kunni að hafa verið hætt komin hér á árum áður þá sé ekki svo lengur, svo fremi sem ræktendur sýni aðgát. „Hann er náttúrulega frekar sjaldgæfur. Við erum með um 5.000 hunda í öllum heiminum,“ segir hann. Um leið sé íslenski fjárhundurinn fjölbreytilegur og hægt að rækta af honum nokkrar týpur. Hér hafi Bretinn Mark Watson snemma á síðustu öld fundið þrjár ríkjandi tegundir af íslenska hundinum. „Það voru snöggur hundur, loðinn hundur og svo minni hundur sem er talið að hafi dáið út. Þannig að núna tölum við bara um snöggan og loðinn, eða lubba og snöggan.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira