Innlent

Rekstur Heimilis og skóla fór úr böndum

Samtökin segjast ekki ætla að slá slöku við í fræðslu og hagsmunagæslu fyrir skólabörn, heldur eigi þvert á móti að auka við verkefnin. nordicphotos/getty
Samtökin segjast ekki ætla að slá slöku við í fræðslu og hagsmunagæslu fyrir skólabörn, heldur eigi þvert á móti að auka við verkefnin. nordicphotos/getty
Rúmlega tuttugu milljóna króna tap var á rekstri samtakanna Heimilis og skóla á síðasta ári. Rúmlega tveggja milljóna hagnaður var af rekstrinum árið áður.

Félagskjörnir skoðunarmenn samtakanna vöktu athygli á þessu í ársskýrslu. Þeir segja þar að „rekstur samtakanna hafi farið úr böndum og að eftirliti hafi verið ábótavant“.

 

Tekjur samtakanna drógust umtalsvert saman milli ára en útgjöld jukust verulega á sama tíma. Til dæmis hækkaði launakostnaður um rúmar fimm milljónir, úr 26 í 31. Þá hækkaði kostnaður samtakanna við ráðstefnur, námskeið, fyrirlestra og fleira um 2,6 milljónir króna, úr 563 þúsundum í rúmlega þrjár milljónir króna. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður jókst um 70 prósent, eða 3,4 milljónir króna.

 

„Það sem fór úrskeiðis var að stjórn samtakanna greip ekki inn í nægilega snemma til að stöðva þetta tap og gera ráðstafanir,“ segir Ketill Berg Magnússon, nýkjörinn formaður Heimilis og skóla. Hann segir árið 2010 hafa verið mun kostnaðarsamara en gert hafði verið ráð fyrir auk þess sem tekjur hafi verið lægri. „Það gekk illa að safna styrkjum sem er meðal þess sem er okkar fjáröflunarleið. Það varð til þess að það var mikið tap á rekstrinum.“ Þá voru tíð framkvæmdastjóraskipti á árinu sem hækkuðu launakostnað.

 

Framkvæmdahópur tók til starfa vegna málsins í febrúar, þegar ljóst var hvernig staðan væri. Hópurinn segir að stjórn og framkvæmdanefnd hafi fram að því ekki fengið réttar upplýsingar frá framkvæmdastjórum þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að stóran hluta ársins hafi gjöld verið mun hærri en tekjur og það sé mjög alvarlegt. Framkvæmdastjórar, framkvæmdanefnd og stjórn beri ábyrgð á því.

 

Framkvæmdahópurinn hefur haft það hlutverk að snúa rekstrinum við á ný. „Það er skemmst frá því að segja að á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur það tekist, við erum búin að snúa tapinu í hagnað og á sama tíma aukið verkefni og útgáfu til muna,“ segir Ketill. thorunn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×