Lífið

Reynir að verjast árásum annarra keppenda

Sara McMahon skrifar
Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við HR, er eina stúlkan sem tekur þátt í Hakkarakeppni HR á morgun.
Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við HR, er eina stúlkan sem tekur þátt í Hakkarakeppni HR á morgun. Fréttablaðið/Daníel
„Ég er ein af níu keppendum í úrslitum og eina stúlkan í hópnum. Það var eins í fyrra, þá var ég eina stelpan í fimm manna hópi,“ segir Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og keppandi í Hakkarakeppni HR sem fram fer á morgun.

Að sögn Helgu er hakkarakeppni sem þessi hörkuspennandi áhorfs. „Keppendur sitja uppi á sviði og reyna að brjótast inn í tölvuna hjá hver öðrum og verjast árásum hinna um leið. Það er stigatafla á staðnum sem áhorfendur fylgjast með og svo er keppninni lýst á mannamáli. Þetta er eins og hörkuspennandi fótboltaleikur,“ segir hún og hlær.

Strembin keppni

Keppnin er haldin í tengslum við ráðstefnuna Nordic Security Conference sem fer fram hér á landi um þessar mundir. Á meðal ráðstefnugesta er Katie Moussouris, yfirmaður öryggismála hjá Microsoft.

„Þetta verður mjög strembin keppni. Það eru til dæmis tveir erlendir hakkarar sem fljúga að utan til að taka þátt. Maður á það til að verða stressaður í svona aðstæðum og hugsa ekki jafn skýrt og alla jafna, en þetta er samt ofsalega gaman.“

Helga lauk grunnnámi í tölvunarfræði við HR síðasta vor. Lokaverkefni sitt vann hún í starfsnámi við hina virtu Fraunhofer-stofnun í Maryland í Bandaríkjunum og var verkefnið ætlað bandarísku geimferðastofnuninni, NASA. „Ég sinnti rannsóknum sem notaðar eru til að prófa notendaviðmót fyrir kerfi sem NASA notar til að stjórna gervihnöttum. Það er mjög mikilvægt að það séu ekki villur í þeim kerfum,“ útskýrir hún.

Nýta kunnáttuna ekki til ills

Það krefst mikillar vinnu að verða fær hakkari og segist Helga hafa lært tökin á námskeiði í tölvuöryggi sem kennt er við HR. „Hver sem er getur lært að hakka ef hann nennir að leggja tíma og vinnu í það. Ég lærði að hakka á námskeiði í tölvuöryggi, hugsunin er sú að til þess að verjast þarf maður fyrst að læra að ráðast inn. En það er ætlast til þess að fólk nýti þessa kunnáttu ekki til ills.“

Keppnin fer fram í HR klukkan 19.30 og er öllum opin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×