Ríkisstjórnarsamstarf kynnt á morgun eða þriðjudag Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. maí 2013 12:00
Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður kynnt á morgun laugardag eða á þriðjudag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar. Stjórnarmyndunarviðræður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins eru nú á lokametrunum. Er stefnt að því að ljúka viðræðunum í dag eða á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er stefnt að því að kynna ríkisstjórnarsamstarfið á morgun, laugardag, eða á þriðjudaginn, vegna Hvítasunnuhelgarinnar. Er fremur horft til þriðjudagsins í þessum efnum. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins þarf að samþykkja ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn. Þá þarf miðstjórn Framsóknarflokksins að gera slíkt hið sama. Eftir að þessar stofnanir innan flokkanna hafa samþykkt samstarfið munu formenn flokkanna ákveða skiptingu ráðuneyta og í kjölfarið funda með einstökum þingmönnum. Síðan gera formennirnir tillögur um ráðherraefni sem bornar verða undir þingflokkana til samþykktar. Stefnt er að því að fjölga ráðherrum um tvo. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur þegar lýst yfir áhuga á því að sérstakur heilbrigðisráðherra taki við heilbrigðismálum úr velferðarráðuneytinu. Þá verður atvinnuvegaráðuneytinu skipt upp í tvö ráðuneyti sem flokkarnir skipta með sér, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Þeir þingmenn sem fréttastofa hefur rætt við úr báðum flokkum ganga út frá því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði forsætisráðherra, en það þykir jafnframt eðlilegt þar sem hann hefur stjórnarmyndunarumboðið. Fréttatíminn fullyrðir í dag að Sigmundur Davíð verði forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson verði fjármálaráðherra. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar eru annars vegar skuldamál heimilanna og hins vegar fjármagnshöftin. Lausnir þessara tveggja mála haldast í raun í hendur að vissu leyti, eins og formaður Framsóknarflokksins talaði um í aðdraganda kosninganna. Þá hafa þeir þingmenn sem fréttastofa hefur rætt við talað um skattalækkanir, en svigrúm til þeirra er takmarkað vegna viðkvæmrar stöðu ríkissjóðs. Hefur einkum verið horft til lækkunar tryggingargjalds fyrirtækja í þessum efnum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira