Innlent

Samninganefndin við ESB formlega leyst frá störfum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Samninganefndin nýskipuð árið 2009 ásamt Össuri Skarphéðinssyni, þáverandi utanríkisráðherra.
Samninganefndin nýskipuð árið 2009 ásamt Össuri Skarphéðinssyni, þáverandi utanríkisráðherra. Mynd/GVA
Utanríkisráðuneytið hefur sent nefndarmönnum samninganefndar Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið bréf þess efnis að nefndin, ásamt samningahópunum tíu og samráðsnefnd, hafi formlega verið leyst frá störfum.

Vísað er til þeirrar stefnumörkunar ríkisstjórnarinnar að hlé verði gert á aðildarviðræðum við ESB og þeim ekki haldið áfram án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Með vísan til framangreindrar stefnumörkunar og að teknu tilliti til þess að óvíst er hvort og þá hvenær viðræður hefjast á ný þykir rétt að leysa samninganefnd, samningahópa og samráðshóp formlega frá störfum,“ segir í bréfinu, sem dagsett er 6. september og undirritað af Einari Gunnarssyni, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu

„Sú vinna sem unnin hefur verið mun án efa nýtast í samskiptum við Evrópusambandið,“ segir enn fremur í bréfinu. „Þá er rétt að árétta að lausn samninganefndar og hópa frá störfum þýðir ekki að viðræðum hafi verið slitið. Það er önnur og sérstök ákvörðun.“

Í samninganefndinni sitja sautján manns, sem allir hafa nú verið leystir frá störfum. Að auki hafa tugir manna setið í samningahópunum tíu og samráðshópnum.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í síðasta mánuði, á fundi með utanríkismálanefnd Alþingis, að hann væri að íhuga að leysa samninganefnd Íslands og einstaka hópa frá störfum.

Össur Skarphéðinsson, forveri Gunnars Braga í embætti utanríkisráðherra, sagði við það tækifæri að gerði Gunnar Bragi alvöru úr því væri hann að ganga á bak eigin orða: „Hann hafði lýst því yfir opinberlega að það ætti að gera úttekt á stöðunni í Evrópusambandinu og stöðu viðræðna og leggja það fyrir þingið. Síðan yrðu teknar ákvarðanir í framhaldi af því,“ sagði Össur í viðtali á Stöð 2.

„Þetta er bara framhald út af því hléi sem gert hefur verið og á ekki að koma neinum á óvart,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og tekur fram að Evrópusambandið hafi gert slíkt hið sama og sett sitt fólk til annarra starfa.

Hann segir enga ástæðu hafa verið til að bíða úttektar þingsins á stöðunni gagnvart ESB, sem leggja átti fram í haust. „Nei, það er engin ástæða til þess vegna þess að þessi ríkisstjórn hefur talað skýrt um að hún ætlar ekki að halda áfram viðræðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×