Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða

Tuskegee-rannsóknin er eitt alræmdasta samsæri yfirvalda gegn eigin borgurum á tuttugustu öldinni. Bandaríska ríkið bauð fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ en meinuðu þeim vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt til að fylgjast með því hvernig sjúkdómurinn legði taugakerfið, beinin og hjartað í rúst.

Lífið


Fréttamynd

„Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“

Emilíana Torrini segist hafa upplifað ofsafenginn sviðskvíða frá því hún hóf tónlistarferil sinn fyrir þrjátíu árum. Það hafi verið galið að verða fræg sautján ára gömul og ótrúlegt hvað fólk hafi leyft sér markalaus og öfgafull samskipti við hana. Þegar hún byrjaði að svara fyrir sig lenti hún í slagsmálum við mun eldri hjón niðri í bæ.

Tónlist

Mest lesið

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.

Fréttamynd

Verður yngsta skvettan í þing­flokki Sjálf­stæðis­manna

Ingveldur Anna Sigurðardóttir mun á næstu dögum taka sæti á Alþingi Íslendinga. Hún er tuttugu og níu ára gömul og verður yngst í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ingveldur vill láta til sín taka og segir að það nægi ekki að sitja heima við eldhúsborðið og nöldra. „Ég held þau hafi bara gott af því að fá eina skvettu inn í þingflokkinn,“ segir Ingveldur.

Lífið
Fréttamynd

Fann ástina á Tinder og endaði í Texas

Þegar Eydís Helga Gunnarsdóttir rakst á bandarískan hermann sem hafði „lækað“ hana á Tinder gerði hún ekki ráð fyrir miklu, í mesta lagi einum aukafylgjanda á Instagram. Raunin varð þó önnur. Á þessum tíma var hún einhleyp stelpa í Mosfellsbæ sem sinnti tveimur vinnum og var í krefjandi háskólanámi. Í dag, fjórum árum seinna, er hún orðin gift húsmóðir í Texas. Eitt „læk“, sem hún næstum því hunsaði, átti sem sagt eftir að breyta öllu.

Lífið
Fréttamynd

Þegar tón­listin hel­tók lög­manninn

Ferill Jóhannesar S. Ólafssonar er einstakur. Blaðamaður hafði stöku sinnum, í gegnum feril sinn, rætt við Jóhannes um ýmis sakamál sem hann hafði haft með að gera sem hæstaréttarlögmaður. Þegar hann sá svo dúett sunginn á samfélagsmiðlum fannst honum hann kannast við manninn. Fannst hann kunnuglegur en náði ekki að tengja. Eða hvað? Nei, gat þetta verið lögmaðurinn?

Lífið
Fréttamynd

„Ég sef í galla­buxum“

„Amma var ótrúlega skapandi og efnileg í öllu og ég er svo þakklátur að seinasta verkefni hennar var fyrir mig,“ segir hinn 21 árs gamli Úlfur Ísberg sem er mikill tískuunnandi. Úlfur hefur nám í fatahönnun við Listaháskóla Íslands í haust og er nú þegar farinn að vekja athygli í samfélaginu fyrir einstaklega skemmtilegan klæðaburð.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Frétta­tía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Lífið
Fréttamynd

Anthony Head er látinn

Breski leikarinn Anthony Head er látinn, 72 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Buffy the Vampire Slayer og Ted Lasso.

Lífið
Fréttamynd

„Aldrei of seint að gera hlutina“

Tónlistarhjónin Regína Ósk og Svenni Þór eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í dansi en undanfarin misseri hafa þau einnig tekið til hendinni heima fyrir. Þar á meðal settu þau upp lítinn kaldan pott á pallinn og smíðuðu sér útisánu úr bjálkakofa. Vala Matt kíkti í heimsókn til þeirra hjóna í Kópavoginn í nýjasta þætti af Ísland í dag.

Lífið
Fréttamynd

Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferða­lögum

Hátt í 400 manns mættu á viðburð hjá Topptjöldum og vögnum þar sem nýjasta lína IKAMPER topptjalda var kynnt, auk rafmótorhjóla frá Talaria. Sigurður Þorsteinsson, einn eiganda Topptjalda og vagna, segir sífellt stærri hóp kjósa frelsið sem felst í því að ferðast með topptjald. IKAMPER topptjöldin eru þar í fararbroddi og standist íslenskar aðstæður allan ársins hring.

Lífið samstarf
Fréttamynd

James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar

Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Lang­dregnir brandarar stoppa ekki stuðið

Gamanþáttaröðin 20 og eitthvað fangar vel tíðaranda síðustu ára og vandræði fólks á þrítugsaldri. Frásagnarformið er góð blanda af hefðbundinni sögu, sketsum, tónlistaratriðum og reglulegu broti á fjórða veggnum. Þættirnir einkennast af sköpunargleði og nýjungagirni en helsti ókostur þeirra er að margir brandaranna eiga það til að teygjast á langinn.

Gagnrýni
Fréttamynd

„Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“

Fimm vinkonur í tíunda bekk í Kársnesskóla afhentu börnum á Barnaspítala hringsins glaðning í morgun. Tilefnið er lokaverkefni stelpnanna úr skólanum en þær misstu bestu vinkonu sína úr krabbameini fyrir fjórum árum og vildu heiðra minningu hennar.

Lífið
Fréttamynd

Ein­mana­legt á­huga­mál fjögurra ís­lenskra stráka

Barbershop-kvartettinn og kórinn Fönn og Barbara halda fyrstu sameiginlegu tónleikana sína í Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 5. júní. Kórstjóri segir þetta hafa byrjað sem einmanalegt áhugamál en iðkendum hafi fjölgað og hópurinn stefni á útrás. 

Lífið