Eyjamönnum er spáð þriðja sæti í Pepsi-deildinni - umfjöllun frá Stöð 2 sport

„Okkur var spáð 10. sætinu í fyrra en markmiðið er að gera betur, það er markmiðið í öllu námi og allri þjálfun,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV m.a. í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport í gær um Pepsi-deildina í knattspyrnu sem hefst á sunnudaginn. Eyjamönnum er spáð þriðja sætinu af sérfræðingum Stöðvar 2 sport en í myndbandinu má sjá hluta úr upphitunarþætti um Pepsi-deildarinnar frá því í gærkvöld þar sem fjallað var um ÍBV liðið.

2601
07:04

Vinsælt í flokknum Fótbolti