Nadia bođar til byltingar í rappheimum á Íslandi. Hún er ađ senda frá sér sitt fyrsta lag ţar sem hún beinir ţví til rappara sem ala á kvenfyrirlitningu, ađ passa sig.
Nýlega fékk hún til liđs viđ sig Redd lights, Alvíru og leikstjórann Eilíf Örn Ţrastarson til ađ gera ögrandi myndband viđ ekki síđur ögrandi textann, sem hún samdi sjálf, viđ rapplagiđ „Passađu ţig."
„Textinn er í raun bara eitt stórt fokk-jú-merki til allra rapparanna sem hafa veriđ ađ rappa um konur og hlutgera ţćr og vera međ kvenfyrirlitningu í textunum sínum," segir Nadia, sem hefur jafnan mörg járn í eldinum, er Íslandsmeistari í magadansi, uppistandari og barţjónn.
Henni finnst rappsenan vera of karllćg. „Ţađ er bara svo rosalega mikiđ sem gengur út á ađ reykja gras, ríđa stelpum og í raun bara hlutgera ţćr ţannig, ađ bara tala um einn líkamspart af ţeim, og ţannig er ţetta líka í myndböndunum," segir hún. Međal áhrifavalda Nadiu er hin umdeilda MIA, söngkonan Lauryn Hill og hin íslenska Cell 7 sem margir ţekkja betur sem Rögnu úr Subterranean.
Hún hefur lengi hlustađ á rapp en blöskrar margir rapptextar. „Ţetta byrjađi ţannig ađ ég fékk lánađan iPod hjá 15 ára stelpu. Hún var međ fullt af íslensku rappi og mér hreinlega blöskrađi svolítiđ viđ ađ hlusta á textana, og ađ ţađ séu fimmtán ára krakkar, og jafnvel yngri, sem eru ađ hlusta á ţetta," segir Nadia. „Menningin elur líka upp börn"
Henni finnst mikilvćgt ađ tónlistarmenn sýni ábyrgđ. „Ţessir rapparar koma oft fram og segja ađ ţeir séu ekki ađ ala upp börnin, foreldrarnir geri ţađ. Mér finnst samt ađ ţađ eigi ađ taka einhverja ábyrgđ ţví poppmenning er svo áhrifarmikil. Menningin elur líka upp börn," segir hún.