Innlent

Seyðfirðingum brugðið, vilja svör um jarðgöng

Kristján Már Unnarsson skrifar
Seyðfirðingum er brugðið vegna frétta um að ráðamenn Norrænu vilji flytja viðkomustað ferjunnar til Fjarðabyggðar vegna erfiðs fjallvegar. Margrét Guðjónsdóttir, formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar, kallar eftir því að ríkisstjórn og Alþingi svari því hvenær jarðgöng fáist undir Fjarðarheiði.

Færeyska ferjan Norræna og forverar hennar hafa haft Seyðisfjörð sem viðkomuhöfn á Íslandi allt frá árinu 1975. Yfir vetrarmánuði kemur ferjan inn á þriðjudagsmorgnum en fer ekki aftur fyrr en á miðvikudagskvöldum. Mörghundruð erlendir ferðamenn hafa nýtt þetta tveggja daga stopp til að skoða Mývatnssveit annan daginn og Fljótsdalshérað hinn daginn en gista þess á milli um borð í skipinu. Rúturnar hafa hins vegar lent í vandræðum á Fjarðarheiði.

Aðalheiður Borgþórsdóttir, ferða- og menningarmálafulltrúi Seyðisfjarðar, segir í viðtali við Stöð 2 að þegar ófært varð yfir heiðina í haust hafi Seyðfirðingar reynt að sinna 600 farþegum eftir bestu getu og reynt að mæta því.

Útgerð Norrænu virðist nú búin að missa þolinmæðina og óskaði í síðustu viku eftir viðræðum við Fjarðabyggð um möguleika á að ferjuhöfnin flytjist þangað. Seyðfirðingum er brugðið enda mikið í húfi. Jóhann Hansson, hafnarvörður á Seyðisfirði, segir 8-9 heilsársstörf í bænum í kringum ferjuna, hjá Austfari, umboðsaðila Smyril-line, og Blue Water, sem annist fraktina.

Jóhann Hansson hafnarvörður: 8-9 heilsársstörf í húfiMyndir/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Margrét Guðjónsdóttir, formaður bæjarráðs, segir málið fyrst og síðast snúast um jarðgöng.

„Fjarðarheiðin er mikill farartálmi, því miður. En það stendur allt til bóta. Við erum komin inn á samgönguáætlun og ætlum okkur undir heiðina.”  Nú verði Alþingi og ríkisstjórn að gefa svör um tímasetningu framkvæmda.

Lagt hefur verið í miklar fjárfestingar á Seyðisfirði vegna ferjunnar og hún skilar verulegum hluta af tekjum hafnarsjóðs, að sögn Jóhanns Hanssonar. Fyrir utan skipagjöld, bæði bryggju- og lestargjald, fái höfnin skatt af farþegum og bílum, sem og vörugjöld af fraktinni. „Þannig að það skiptir verulegu máli," segir Jóhann í fréttum Stöðvar 2.

Norræna kemur til Seyðisfjarðar á þriðjudagsmorgnum yfir vetrartímann.

Tengdar fréttir

Mögulegt að Norræna hætti að sigla frá Seyðisfirði

Rekstraraðili Norrænu, Smyril-Line, er að skoða þann möguleika að sigla ferjunni frekar til Fjarðarbyggðar en Seyðisfjarðar eins og nú er. Forsætisráðherra fundaði með bæjarstjóra Seyðisfjarðar í morgun vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×