Innlent

Síminn áfrýjar niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins

Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í dag ákvað Samkeppniseftirlitið að leggja 400 milljóna króna sekt á Símann.

Eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum og EES samningnum með því að beita keppninauta sína samkeppnishamlandi verðþrýstingi.

Síminn hefur nú ákveðið áfrýja niðurstöðunni og telur aðferðafræði Samkeppniseftirlitsins vera neytendum til tjóns.

Í fréttatilkynningu frá Símanum kemur fram að fyrirtækið lúti ströngu eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar og að tilgangur fyrirtækisins hafi ávallt verið að mæta samkeppni á eðlilegan hátt.

„Síminn telur að í þessu máli hafi Samkeppniseftirlitið ekki virt þá frumskyldu sína að vernda samkeppnina heldur sé verið að fordæma eðlilega háttsemi á samkeppnismarkaði til að vernda tiltekna keppinauta félagsins. Slík framganga er til þess fallin að skaða samkeppni og vera neytendum til tjóns þegar til lengri tíma er litið," segir í tilkynningunni.

Hægt er að lesa fréttatilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan:

Síminn áfrýjar og telur aðferðafræði Samkeppniseftirlitsins vera neytendum til tjóns

Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem honum var birt var í dag, til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Málið varðar verðlagningu Símans á farsímamarkaði.

Af þessu tilefni vill Síminn taka fram eftirfarandi:

1. Verðákvarðanir og verðstefna Símans lúta ströngu eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar og tilgangur Símans er ávallt að mæta samkeppni á eðlilegan hátt.

2. Í rökum Samkeppniseftirlits er á því byggt að sökum stærðar kerfis Símans sé algengara að viðskiptavinir annarra símafyrirtækja hringi í kerfi Símans en öfugt og að það veiti Símanum forskot í samkeppni. Þetta er einfaldlega rangt. Ný fyrirtæki á markaði njóta svokallaðs jákvæðs mismunar og hefur Síminn því greitt meira til þeirra vegna millikerfasímtala en þau til Símans. Nam mismunurinn yfir hið ætlaða brotatímabil 2,4 milljörðum króna Símanum í óhag.

3. Síminn telur að í þessu máli hafi Samkeppniseftirlitið ekki virt þá frumskyldu sína að vernda samkeppnina heldur sé verið að fordæma eðlilega háttsemi á samkeppnismarkaði til að vernda tiltekna keppinauta félagsins. Slík framganga er til þess fallin að skaða samkeppni og vera neytendum til tjóns þegar til lengri tíma er litið.

4. Síminn telur sig hafa góðan málstað að verja og byggir afstöðu sína meðal annars á áliti virts ráðgjafarfyrirtækis, Copenhagen Economics, varðandi álitaefnin sem hér er um rætt. Copenhagen Economics hefur víðtæka þekkingu á sviði samkeppnisréttar, einkum er varðar fjarskiptamarkaði. Hefur fyrirtækið m.a. unnið fyrir framkvæmdastjórn ESB og ýmsar fjarskiptaeftirlitsstofnanir, þ.m.t. póst- og fjarskiptastofnun Noregs.

5. Meginniðurstaða álitsgerðar Copenhagen Economics er sú að aðferðafræði Samkeppniseftirlitsins samræmist hvorki aðferðafræði evrópskra eftirlitsstofnana né ríkjandi sjónarmiðum í evrópskum samkeppnisrétti og hagfræðileg rökum. Þá gangi mat Samkeppniseftirlitsins ekki upp sé litið til þróunar á íslenskum farsímamarkaði síðastliðin áratug.


Tengdar fréttir

440 milljóna sekt lögð á Símann

Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að leggja 390 milljóna króna sekt á Símann, en eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í dag að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum og EES samningnum með því að beita keppinauta sína samkeppnishamlandi verðþrýstingi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×