Sjóðsfélagar endurgreiði ekki 9. september 2010 06:45 Peningar kónur og evrur
Nýju bankarnir, eða þeir sem högnuðust á kaupum á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna, gætu þurft að greiða ríkinu til baka þá fjárhæð sem varið var til kaupanna. „Viðskiptavinir þeirra, fólkið sem lagði fé sitt í sjóðina þarf hins vegar ekki að greiða neitt,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í samtali við Fréttablaðið. ESA greindi frá því í gær að hafin væri formleg rannsókn á kaupum Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans á skuldabréfum peningamarkaðssjóða sem gömlu bankarnir starfræktu. Rannsóknin lýtur að því hvort kaupin feli í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. greinar EES-samningsins. Á meðal þess sem ESA skoðar er hvort viðskiptalegar forsendur hafi legið að baki kaupum bankanna. Eftir bankahrunið varð mikil óánægja með að neyðarlögin sem sett voru við yfirtöku á bönkunum tryggðu ekki eign einstaklinga og fyrirtækja í peningamarkaðssjóðum með sama hætti og innstæður í bönkunum. Björgvin G. Sigurðsson, þá viðskiptaráðherra, sagði reynt að lágmarka tjón sjóðsfélaga. Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til bankanna rétt eftir miðjan október, að slíta sjóðunum og greiða sjóðsfélögum út. Í kjölfarið keyptu bankarnir eignir sjóðanna fyrir 83,6 milljarða króna. Stór hluti eignanna hefur verið afskrifaður. Sjóðunum var slitið í lok október og var viðskiptavinum þeirra greitt út allt frá 69 prósentum til 85 prósenta af eign þeirra. Fjögur fjármálafyrirtæki sem starfræktu álíka sjóði fengu ekki sambærilegt tilboð í eign sína. Þau töldu sig ekki sitja við sama borð. Lögmannsstofan Lex kærði málið fyrir þeirra hönd til ESA í apríl í fyrra. Sum fyrirtækjanna hafa ekki getað greitt úr sjóðum sínum að fullu. Fjármálaráðuneytið hefur andmælt ESA og segir stjórnvöld ekki hafa gefið fyrirmæli um kaup á eignum sjóðanna. Slit þeirra hafi lotið einkaréttarlegu uppgjöri á þeim eftir fall bankanna. Óháðir aðilar hafi metið virði eigna sjóðanna. Sanderud segir niðurstöðu rannsóknarinnar kunna að liggja fyrir á næsta ári. - jab
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira