Tíska og hönnun

Skótískan í sumar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Rekstrarverkfræðingurinn Agla Friðjónsdóttir opnaði vefsíðuna Shoe Jungle í september á síðasta ári. Vefurinn hefur að geyma frumskóg af fróðleik um allt sem við kemur skóm og skókaupum, ásamt því sem hún bloggar um daglegt líf og tísku. Agla hefur alltaf verið mikil áhugamanneskja um skó og er hálfgerður skósafnari að eigin sögn, en hún á um 200 para safn. Hún segist lesa tískublogg jafnt sem fréttamiðla og fannst vanta síðu sem einblíndi á skó í íslensku bloggflóruna.

Lífið fékk þennan skósérfræðing til að segja okkur frá helstu skótrendum sumarsins.

1. GLÆRT:

Glært og gegnsætt hefur verið að ryðja sér til rúms í skótískunni síðastliðna mánuði og mun koma enn sterkar inn í sumar. Þetta trend kemur fyrir í margvíslegri mynd, hvort sem það eru glærar ólar, glærir hælar eða einfaldlega allur skórinn sem er glær.

2. GLADIATOR HÆLAR:

Þessi óvenjulega og frumlega hönnun á vonandi eftir að ná inn fyrir landsteinana í sumar en hér er um að ræða hálfgerða blöndu af stígvélum og hælum. Þetta trend sást meðal annars á sýningarpöllunum hjá Alexander Wang, Vercace og Acne og hefur fengið talsverða umfjöllun í skóheiminum.

3. SVART&HVÍTT:

Þrátt fyrir að svart og hvítt séu andstæður þá taka þessir litir höndum saman í sumar og koma með skemmtilega tilbreytingu inn í skóflóruna.

4. HÁTT HÆLASTYKKI:

Þetta sumarið er það ekki hællinn sem hækkar heldur stykkið bak við hælinn. Þetta trend hefur skotið upp kollinum hjá t.d. Dior, Cheap Monday, Alexander McQueen og Saint Laurent. Það verður gaman að sjá hvort það nái að skjóta rótum hérlendis í sumar.

5. GEOMETRÍSKAR LÍNUR:

Það er ekkert skemmtilegra en að ganga um í skóm sem gætu allt eins verið hannaðir af arkitekt. Skarpar línur og skemmtileg form svo að skórnir eru í raun gangandi listaverk. Geómetrískir skór eru strax byrjaðir að skjóta upp kollinum í helstu netverslunum og munu skína skært í sumar.

Önnur skemmtileg trend sem ber að nefna fyrir sumarið eru támjóir hælar, metal litir, regnbogalitaður botn og götóttir hælar/botn.

Þeir sem vilja fræðast meira um skó og tísku geta heimsótt blogg Öglu Shoejungle.is eða fylgst með því á facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×