Innlent

Stígamótakonur leita karls með skegg

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðrún Jónsdóttir. Kynferðisofbeldi er fyrst og fremst karlavandamál.
Guðrún Jónsdóttir. Kynferðisofbeldi er fyrst og fremst karlavandamál. gva
Átján prósent skjólstæðinga Stígamóta á síðasta ári voru karlmenn, sem rekja má fyrst og fremst til Karls Vignis málsins svokallaða að sögn talskonu Stígamóta. Samtökin ætla nú í fyrsta skipti að ráða karlmann í vinnu til sín en í dag vinna níu konur á Stígamótum.

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta var gestur á opnu málþingi Zontklúbbs Selfoss í Tryggvaskála í gærkvöldi þar sem hún sagði frá starfsemi samtakanna og fjallaði um ósýnilegt ofbeldi. Hún kom líka inn á kynferðislegt ofbeldi og var þar með splunku nýja frétt sem mun birtast í ársskýrslu samtakanna fyrir 2013, sem kemur út í lok mánaðarins.

„Við höfum aldrei fengið jafn marga karla til Stígamóta eins og síðast liðið ár. Átján prósent af þeim sem komu til okkar í fyrra voru karlar. Og það tengist umræðunni í kjölfar Karls Vignis-málsins,“ segir Guðrún.

Stígamót leita nú af logandi ljósi af góðum karlmanni, sem vill vinna með þeim níu konum sem starfa hjá Stígamótum.

„Já, við viljum fá góðan karl í lið með okkur. Helst með skegg og allt svo þetta sé augljóslega maður. Og, þá kannski til að undirstrika vinnu okkar með körlum. Allra hluta vegna viljum við hafa val um að fólk geti farið til karls þegar það kemur til okkar. Og ekki síst vil ég hafa karl við hliðina á mér, eða geta sent karl með fræðslu út í skóla og út í samfélagið vegna þess að kynferðisofbeldi er fyrst og fremst karlavandamál.“

Guðrún segist vera ákaflega glöð með það hvað karlar leita mikið til Stígamóta eftir aðstoð. „Við rekum fyrir þá sjálfshjálparhópa til dæmis og þeir koma í viðtöl. Það er bara hið besta mál.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×