Innlent

Stór vörubíll valt á Lækjargötu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vörubíllin valt á Lækjargötu.
Vörubíllin valt á Lækjargötu. Mynd/ Verónika Sif Sigurðardóttir
Bílvelta varð við N1 við Lækjargötu i Hafnarfirði um klukkan hálffjögur í dag. Þar fór stór vörubíll á hliðina með þeim afleiðingum að salt rann úr honum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu sem betur fer engin slys á fólki en eins og sjá má á þessari mynd sem Verónika Sif Sigurðardóttir sendi Vísi fór töluvert magn af salti á götuna. Því var slökkviliðið fengið á staðinn til að hreinsa það upp og til að grípa til viðbragða ef olía læki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×