Stúlkan hefði getað hlotið alvarlegan augnskaða Karen Kjartansdóttir skrifar 20. maí 2012 18:45
Mennirnir sem slógu gólfkúlu vísvitandi í andlit lítillar stúlku eru heppnir að hún slasaðist ekki meira. Þetta segir Svanur Sigurbjörnsson, læknir, en hann telur að barnið hefði getað hlotið alvarlegan augnskaða eða jafnvel höfuðkúpubrot. Við ræddum á föstudag við hana Sóldísi Ísaksdóttur, sjö ára, en hún lenti á slysadeild eftir að ungur maður sló golfkúlu viljandi í andlit hennar við Elliðavatn. Maðurinn var í för með félögum sínum og höfðu þeir rekið Sóldísi og félaga hennar í burtu frá vatninu svo þeir gætu slegið kúlum út á það. Sóldís vildi hins vegar sækja hjólahjálminn sinn en við það reiddust mennirnir með fyrrgreindum afleiðingum. Mennirnir skildu hana svo eftir grátandi og blóðuga án þess að huga að henni. Svanur Sigurbjörnsson, læknir, segir það geta haft mjög alvarlegar afleiðingar að fá svona högg í höfuðið. „Ef svona golfkúla fer beint í augað á barni eða fullorðnum þá getur orðið blæðing inn á augað og sjónhimnulos, af því getur hlotist verulegur augnaskaði ef ekki blinda - það er einna hættulegast," segir Svanur. „En auðvitað geta líka brotnað tennur við svona lagað og ef þetta er mjög lítið barn er möguleiki á höfuðkúpubroti." Sóldís litla slapp með nokkur spor í munni og svo framan á vörinni. Foreldrar hennar biðja mennina um að gefa sig fram og biðjast afsökunar á þessari árás og hvetja auk þess þá sem kunna að vita hverjir voru að verki að tilkynna það lögreglu. „Þegar svona högg er reitt er aldrei að vita hvað gerist. Hið versta getur gerst — þetta er mikið hættuspil og mjög alvarlegt," segir Svanur.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira