Tyrkland hættir við Eurovision vegna finnska kossins Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 17. maí 2013 12:40
Tyrkneska sjónvarpið hefur ákveðið að hætta við að sýna frá aðalkeppni Eurovison á morgun. Ástæðan ku vera ótti við að finnska söngkonan Krista Siegrids muni kyssa kvenkyns dansara í beinni útsendingu, en lag hennar er ádeila á stöðu hjónabanda samkynhneigðra. Tyrkland tekur ekki þátt í Eurovision í ár en tyrkneska sjónvarpið hafði þó fyrirhugað að sýna frá keppninni. Samkvæmt samtökum KAOS GL, sem berst fyrir réttindum samkynhneigðra í Tyrklandi, var hætt við að sýna keppnina eftir að fréttir af kossi Kristu á æfingum ullu hneykslan í tyrkneskum fjölmiðlum. Á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að söngvakeppnin verði ekki sýnd vegna þess að búist sé við lélegu áhorfi. Talsmaður KAOS GL segir sjónvarpið nota lágar áhorfstölur sem afsökun, en í fyrra horfði einn afhverjum fjórum í Tyrklandi á Eurovision. Hann segir yfirvöld ritstýra tyrkneskum fjölmiðlum og gera í því að koma í veg fyrir ávinning í réttindabaráttu samkynhneigðra. Kossinn fullkomlega eðlilegur Finnska lagið ber nafnið ,,Marry Me", en Finnland er eina Norðurlandið sem hefur ekki lögleitt hjónabönd samkynhneigðra. Söngkonan Krista vill gera það sem hún getur til að koma boðskapi ástarinnar á framfæri. ,,Ástin er falleg í öllum sínum birtingarmyndum. Af hverju er eitthvað mál að tvær konur kyssist? Það ætti að vera fullkomlega eðlilegt“, segir hún. Á opnunarhátíð Ólympíuleikana í London 2012 var lesbískur koss sýndur í beinni útsendingu víðsvegar um heiminn, meðal annars í Sádi Arabíu og í Tyrklandi. Það var í fyrsta sinn sem mörg lönd sýndu samkynhneigðan koss í sjónvarpi.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira