Innlent

Útkall vegna slæms mataræðis eiginmanns

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Eiginmaðurinn hafði engan áhuga á grænum pizzum.
Eiginmaðurinn hafði engan áhuga á grænum pizzum. Mynd/Getty

„Umhyggja fólks hvert fyrir öðru getur náð svo langt að lögregla sé kölluð til, þyki önnur úrræði ekki ganga eftir.“ Svo ritar lögreglan á Suðurnesjum á Facebook-síðu sína vegna óvenjulegt útkalls sem lögreglumenn sinntu.

Um var að ræða konu sem hafði fengið nóg af matarræði eiginmannsins, en að sögn lögreglu hafði hún ítrekað bent honum á að pizzur, brauð og ruslfæði væru að gera honum heilsufarslegan óskunda. Hún kvaðst enn fremur elda fyrir hann heilsumat, sem hann fúlsaði ævinlega við.

Maðurinn kvaðst langþreyttur á afskiptum konu sinnar í þessum efnum. Hann hefði engan áhuga á grænum pizzum. Lögregla ræddi við fólkið og bjó svo um hnútana að samkomulag komst á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×