Innlent

Vélsleðamaðurinn á batavegi

Vélsleðamenn. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Vélsleðamenn. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Maðurinn sem slasaðist á vélsleða á Mosfellsheiðinni á fjórða tímanum í dag er ekki jafn illa slasaður og í fyrstu var talið. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á spítala eftir að sérútbúin sjúkrabifreið sótti manninn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu en var ekki kölluð út. Eins voru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu en þurftu ekki að aðstoða sjúkraflutningamenn sem komust hjálparlaust til hans.

Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni hlaut maðurinn höfuðáverka. Hann er kominn til meðvitundar og ekki í lífshættu eins og í fyrstu var talið.


Tengdar fréttir

Alvarlegt vélsleðaslys á Mosfellsheiðinni

Vélsleðaslys varð á Mosfellsheiðinni skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Um alvarlegt slys er að ræða. Einn maður var fluttur á slysadeild en sérútbúinn sjúkrabíll sótti manninn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu en ekki þurfti að kalla hana til. Þá voru björgunarsveitir einnig ræstar út en sjúkraflutningsmenn komust sjálfir að manninum upp á heiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×