Innlent Átján skjálftar vestan við Mýrdalsjökul í dag Átján smáskjálftar hafa mælst norðan við Goðalandsjökul á Mýrdalsjökli í dag. Hrinan er ekki óeðlileg að mati náttúruvásérfræðings en náið er fylgst með svæðinu. Innlent 8.6.2023 23:00 Fimmtíu þúsund löxum slátrað í fyrstu uppskeru Fyrstu slátrun á laxi í landeldisstöð Landeldis hf. er lokið með slátrun tæplega fimmtíu þúsund laxa. Innlent 8.6.2023 22:01 Vígslubiskupsembættið sé tilgangslaust prjál Kosning um vígslubiskup í Skálholti er hafin og eru þrír í framboði. Innan kirkjunnar er hins vegar umræða um hver tilgangurinn sé með embættinu og vilja sumir leggja það niður. Innlent 8.6.2023 21:09 Vísað frá neyðarskýli og svipti sig lífi skömmu síðar Heimilislausum manni var ítrekað vísað frá neyðarskýli í Reykjavík að kröfu Hafnarfjarðarbæjar og svipti sig lífi skömmu síðar. Systir mannsins segir hann hafa upplifað niðurlægingu og skilningsleysi. Innlent 8.6.2023 21:01 Einkunnagjöfinni fylgi nú meira streita Foreldrar barna sem eru að ljúka grunnskóla reyna í auknum mæli að hafa áhrif á einkunnagjöf barna sinna. Skólastjóri segir um nýjan streituvald að ræða. Í kvöld rennur út frestur til að sækja um í framhaldsskóla. Innlent 8.6.2023 21:01 Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31 Þriggja ára fiðlusnillingur á Fiðlufjöri á Hvolsvelli Þriggja ára upprennandi fiðlusnillingur er nú staddur á Hvolsvelli á „Fiðlufjöri“, sem er nokkurra daga námskeið fyrir börn og unglinga af öllu landinu í fiðluleik. Innlent 8.6.2023 20:31 Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8.6.2023 19:31 Sýknuð af því að beita Örnu McClure umsáturseinelti Fyrrverandi eiginkona Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja var í síðasta mánuði sýknuð af því að hafa beitt Örnu McClure, lögfræðingi Samherja, umsáturseinelti. Einkaréttarkröfu Örnu gegn henni var vísað frá dómi. Innlent 8.6.2023 18:27 Á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað BSRB segir að á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað í að minnsta kosti þrettán sveitarfélögum síðustu tvo sólarhringa. Verkfallsbrot á leikskólum hafi verið sérstaklega áberandi síðustu daga, þar sem stjórnendur leikskóla virðist hafa fengið fyrirmæli um breytingar á skipulagi sem feli í sér verkfallsbrot. Eins hafi borist ábendingar um brot á bæjarskrifstofum og í sundlaugum. Innlent 8.6.2023 17:48 Dómur yfir Snapchat-perranum staðfestur Landsréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisvist yfir Herði Sigurjónssyni fyrir kynferðisbrot gegn sextán ólögráða stúlkum. Í ágúst 2022 dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Hörð í þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn en sá ákærði áfrýjaði málinu. Innlent 8.6.2023 16:32 Einn bókstafur notaður til að fleyta rjómann af nemendahópnum Ragnar Þór Pétursson, fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, segir að þeir framhaldsskólar sem vilji fleyta rjómann af hópi sextán ára unglinga ættu einfaldlega að hafa inntökupróf þar sem færustu nemendurnir í bóklegum fögum geta einfaldlega keppst um að komast að. Á fimmta þúsund 10. bekkinga komast að því á næstunni hvort þeir fái inni í draumaframhaldskólanum. Innlent 8.6.2023 16:00 Fékk blóðnasir af álagi eftir að hafa séð tilboð borgarinnar Kona sem átt hefur í lögfræðideilu við Reykjavíkurborg í áratug vegna svokallaðs „Shaken baby“-máls segir mikinn létti að geta lokið málinu. Borgarráð samþykkti í dag samkomulag hennar við borgina um tugmilljóna króna bætur. Hún segir fyrsta tilboð borgarinnar um bætur hafa verið svívirðilegt. Innlent 8.6.2023 15:47 Bein útsending: 200 þúsund tonn af tækifærum Starfshópur sem falið var að leggja fram tillögur um hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis mun kynna niðurstöður sínar á fundi sem hefst klukkan 15. Innlent 8.6.2023 14:31 Fólk beðið um að láta af brauðgjöf til andanna Dýravinir á öllum aldri eru beðnir um að standast þá freistingu að gefa öndunum brauð við Tjörnina í Reykjavík í sumar. Ástæðan eru sílamávar sem eru líklegir til að vaða í nýklakta andarungana. Innlent 8.6.2023 14:09 Segir sveitarfélögin jafnvel í hættu á að missa jafnlaunavottunina Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ákvörðun sveitarfélaganna að greiða ekki sömu laun fyrir sömu störf heldur mismuna fólki eftir því hvaða stéttarfélagi það tilheyrir brjóta gegn jafnréttislögum og jafnlaunavottun. Innlent 8.6.2023 13:40 Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8.6.2023 12:42 Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna Innlent 8.6.2023 12:30 Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Alþingi en þar keppast menn nú við að klára þingstörfin en þeim á að ljúka á morgun. Innlent 8.6.2023 11:39 Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu. Innlent 8.6.2023 11:24 Segir ríkissáttasemjara hafa freistað þess að hafa áhrif á Seðlabankann Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri greinir frá því í viðtali við Morgunblaðið í morgun að ríkissáttasemjari, sem þá var Aðalsteinn Leifsson, hafi hringt í Seðlabankann til að hafa áhrif á aðgerðir hans þegar kjaraviðræður stóðu sem hæst. Innlent 8.6.2023 09:58 Segir að sveitarfélögin ættu að sjá að sér líkt og forsætisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri, segir tímabært að sveitarfélögin skipti um kúrs, hætti að hengja sig í formrök og tryggi að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Innlent 8.6.2023 08:58 Hald lagt á stóran hátalara eftir ítrekað ónæði síðustu nætur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af einstaklingi í nótt sem ku hafa farið um miðborgina síðustu nætur með stóran hátalara, spilað háværa tónlist og truflað nætursvefn íbúa. Innlent 8.6.2023 06:59 Stjórnlaus ríkisfjármál og ríkisstjórn í sýndarmennsku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kom víða við í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Sagði hann ríkisfjármálin algjörlega stjórnlaus og störf ríkisstjórnar einkennast af sýndarmennsku. Innlent 8.6.2023 00:11 „Þurfum að ákveða hvers konar þjóð við viljum vera“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir ákall eftir aðgerðum standa upp úr að liðnum þingvetri. Flokkur hennar hafi reynt að stappa stálinu í ríkisstjórnina sem beri sig illa og tali eins og hún stýri engu. Innlent 7.6.2023 23:08 Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. Innlent 7.6.2023 21:33 Missa aðstöðuna rétt fyrir heimsmeistaramót eftir gjaldþrot skólans Tvær stelpur sem eru á leið á heimsmeistaramótið í dansi segja það ömurlegt að missa æfingahúsnæðið örfáum vikum fyrir mótið. Í kjölfar gjaldþrots dansskóla þeirra vita þær aldrei hvar þær æfa næst. Innlent 7.6.2023 21:00 Rostungurinn er farinn Rostungurinn sem legið hefur í fjörunni í Álftanesi í dag hefur synt aftur út á haf út samkvæmt sjónarvottum. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Innlent 7.6.2023 20:14 Manni og barni haldið í Leifsstöð í þrjátíu tíma Albanskur maður og ólögráða frænka hans hafa þurft að hírast í Leifsstöð í meira en þrjátíu klukkutíma. Lögreglan hótar að vísa honum úr landi en lögmaður mannsins segir hana ekki hafa heimild til þess. Dvalarleyfisumsókn sé enn þá í vinnslu. Innlent 7.6.2023 19:58 « ‹ 331 332 333 334 ›
Átján skjálftar vestan við Mýrdalsjökul í dag Átján smáskjálftar hafa mælst norðan við Goðalandsjökul á Mýrdalsjökli í dag. Hrinan er ekki óeðlileg að mati náttúruvásérfræðings en náið er fylgst með svæðinu. Innlent 8.6.2023 23:00
Fimmtíu þúsund löxum slátrað í fyrstu uppskeru Fyrstu slátrun á laxi í landeldisstöð Landeldis hf. er lokið með slátrun tæplega fimmtíu þúsund laxa. Innlent 8.6.2023 22:01
Vígslubiskupsembættið sé tilgangslaust prjál Kosning um vígslubiskup í Skálholti er hafin og eru þrír í framboði. Innan kirkjunnar er hins vegar umræða um hver tilgangurinn sé með embættinu og vilja sumir leggja það niður. Innlent 8.6.2023 21:09
Vísað frá neyðarskýli og svipti sig lífi skömmu síðar Heimilislausum manni var ítrekað vísað frá neyðarskýli í Reykjavík að kröfu Hafnarfjarðarbæjar og svipti sig lífi skömmu síðar. Systir mannsins segir hann hafa upplifað niðurlægingu og skilningsleysi. Innlent 8.6.2023 21:01
Einkunnagjöfinni fylgi nú meira streita Foreldrar barna sem eru að ljúka grunnskóla reyna í auknum mæli að hafa áhrif á einkunnagjöf barna sinna. Skólastjóri segir um nýjan streituvald að ræða. Í kvöld rennur út frestur til að sækja um í framhaldsskóla. Innlent 8.6.2023 21:01
Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31
Þriggja ára fiðlusnillingur á Fiðlufjöri á Hvolsvelli Þriggja ára upprennandi fiðlusnillingur er nú staddur á Hvolsvelli á „Fiðlufjöri“, sem er nokkurra daga námskeið fyrir börn og unglinga af öllu landinu í fiðluleik. Innlent 8.6.2023 20:31
Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8.6.2023 19:31
Sýknuð af því að beita Örnu McClure umsáturseinelti Fyrrverandi eiginkona Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja var í síðasta mánuði sýknuð af því að hafa beitt Örnu McClure, lögfræðingi Samherja, umsáturseinelti. Einkaréttarkröfu Örnu gegn henni var vísað frá dómi. Innlent 8.6.2023 18:27
Á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað BSRB segir að á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað í að minnsta kosti þrettán sveitarfélögum síðustu tvo sólarhringa. Verkfallsbrot á leikskólum hafi verið sérstaklega áberandi síðustu daga, þar sem stjórnendur leikskóla virðist hafa fengið fyrirmæli um breytingar á skipulagi sem feli í sér verkfallsbrot. Eins hafi borist ábendingar um brot á bæjarskrifstofum og í sundlaugum. Innlent 8.6.2023 17:48
Dómur yfir Snapchat-perranum staðfestur Landsréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisvist yfir Herði Sigurjónssyni fyrir kynferðisbrot gegn sextán ólögráða stúlkum. Í ágúst 2022 dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Hörð í þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn en sá ákærði áfrýjaði málinu. Innlent 8.6.2023 16:32
Einn bókstafur notaður til að fleyta rjómann af nemendahópnum Ragnar Þór Pétursson, fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, segir að þeir framhaldsskólar sem vilji fleyta rjómann af hópi sextán ára unglinga ættu einfaldlega að hafa inntökupróf þar sem færustu nemendurnir í bóklegum fögum geta einfaldlega keppst um að komast að. Á fimmta þúsund 10. bekkinga komast að því á næstunni hvort þeir fái inni í draumaframhaldskólanum. Innlent 8.6.2023 16:00
Fékk blóðnasir af álagi eftir að hafa séð tilboð borgarinnar Kona sem átt hefur í lögfræðideilu við Reykjavíkurborg í áratug vegna svokallaðs „Shaken baby“-máls segir mikinn létti að geta lokið málinu. Borgarráð samþykkti í dag samkomulag hennar við borgina um tugmilljóna króna bætur. Hún segir fyrsta tilboð borgarinnar um bætur hafa verið svívirðilegt. Innlent 8.6.2023 15:47
Bein útsending: 200 þúsund tonn af tækifærum Starfshópur sem falið var að leggja fram tillögur um hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis mun kynna niðurstöður sínar á fundi sem hefst klukkan 15. Innlent 8.6.2023 14:31
Fólk beðið um að láta af brauðgjöf til andanna Dýravinir á öllum aldri eru beðnir um að standast þá freistingu að gefa öndunum brauð við Tjörnina í Reykjavík í sumar. Ástæðan eru sílamávar sem eru líklegir til að vaða í nýklakta andarungana. Innlent 8.6.2023 14:09
Segir sveitarfélögin jafnvel í hættu á að missa jafnlaunavottunina Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ákvörðun sveitarfélaganna að greiða ekki sömu laun fyrir sömu störf heldur mismuna fólki eftir því hvaða stéttarfélagi það tilheyrir brjóta gegn jafnréttislögum og jafnlaunavottun. Innlent 8.6.2023 13:40
Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8.6.2023 12:42
Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna Innlent 8.6.2023 12:30
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á Alþingi en þar keppast menn nú við að klára þingstörfin en þeim á að ljúka á morgun. Innlent 8.6.2023 11:39
Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu. Innlent 8.6.2023 11:24
Segir ríkissáttasemjara hafa freistað þess að hafa áhrif á Seðlabankann Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri greinir frá því í viðtali við Morgunblaðið í morgun að ríkissáttasemjari, sem þá var Aðalsteinn Leifsson, hafi hringt í Seðlabankann til að hafa áhrif á aðgerðir hans þegar kjaraviðræður stóðu sem hæst. Innlent 8.6.2023 09:58
Segir að sveitarfélögin ættu að sjá að sér líkt og forsætisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri, segir tímabært að sveitarfélögin skipti um kúrs, hætti að hengja sig í formrök og tryggi að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Innlent 8.6.2023 08:58
Hald lagt á stóran hátalara eftir ítrekað ónæði síðustu nætur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af einstaklingi í nótt sem ku hafa farið um miðborgina síðustu nætur með stóran hátalara, spilað háværa tónlist og truflað nætursvefn íbúa. Innlent 8.6.2023 06:59
Stjórnlaus ríkisfjármál og ríkisstjórn í sýndarmennsku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kom víða við í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Sagði hann ríkisfjármálin algjörlega stjórnlaus og störf ríkisstjórnar einkennast af sýndarmennsku. Innlent 8.6.2023 00:11
„Þurfum að ákveða hvers konar þjóð við viljum vera“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir ákall eftir aðgerðum standa upp úr að liðnum þingvetri. Flokkur hennar hafi reynt að stappa stálinu í ríkisstjórnina sem beri sig illa og tali eins og hún stýri engu. Innlent 7.6.2023 23:08
Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. Innlent 7.6.2023 21:33
Missa aðstöðuna rétt fyrir heimsmeistaramót eftir gjaldþrot skólans Tvær stelpur sem eru á leið á heimsmeistaramótið í dansi segja það ömurlegt að missa æfingahúsnæðið örfáum vikum fyrir mótið. Í kjölfar gjaldþrots dansskóla þeirra vita þær aldrei hvar þær æfa næst. Innlent 7.6.2023 21:00
Rostungurinn er farinn Rostungurinn sem legið hefur í fjörunni í Álftanesi í dag hefur synt aftur út á haf út samkvæmt sjónarvottum. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Innlent 7.6.2023 20:14
Manni og barni haldið í Leifsstöð í þrjátíu tíma Albanskur maður og ólögráða frænka hans hafa þurft að hírast í Leifsstöð í meira en þrjátíu klukkutíma. Lögreglan hótar að vísa honum úr landi en lögmaður mannsins segir hana ekki hafa heimild til þess. Dvalarleyfisumsókn sé enn þá í vinnslu. Innlent 7.6.2023 19:58