Golf

McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rory og Erica McIlroy á Ryder-bikarnum í fyrra.
Rory og Erica McIlroy á Ryder-bikarnum í fyrra. getty/Brendan Moran

Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni, Ericu.

McIlroy sótti um skilnaðinn í Flórída á mánudaginn, daginn eftir að hann vann Wells Fargo Championship mótið.

Á morgun hefst PGA-meistaramótið í Louisville í Kentucky. McIlroy þykir sigurstranglegur fyrir þetta annað risamót árisns.

McIlroy og Erica kynntust 2012 og gengu í hjónaband fimm árum seinna. Þau eiga eitt barn saman, dótturina Poppy Kennedy sem fæddist 2020.

McIlroy hefur ekki unnið risamót síðan hann hrósaði sigri á PGA-meistaramótinu 2014 en freistar þess að breyta því um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×