
Vísir
Nýlegt á Vísi



Stjörnuspá
01. apríl 2025
Morgunninn nýtist þér vel en þér verður lítið úr verki síðdegis. Þú ættir að gera þér dagamun og fara út á lífið.

Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði
Fjármálaráðherra kynnti í dag fjármálaáætlun og er stefnt að því að hagræða um ríflega hundrað milljarða á næstu árum. Við fáum viðbrögð frá Jóni Gunnarssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins og Bergþóri Ólasyni þingflokksformanni Miðflokksins í beinni útsendingu í kvöldfréttunum.

Reiknar ekki með öðru en Chris Paul taki annað tímabil
Margir virðast velta því fyrir sér hvort hinn bráðum fertugi Chris Paul ætli ekki að fara að leggja skóna á hilluna, en internetið er troðfullt af falsfréttum um að hann hafi gefið það út að hann sé að hætta.

Brothætt kvöld hjá GameTíví
Strákarnir í GameTíví munu láta reyna á samstarfið í kvöld. Meðal annars munu þeir brjóta og bramla í leiknum Carry the Glass og reyna að forðast skrímslin í R.E.P.O.

Ísland í dag - Morgunkaffi til nýs borgarstjóra
Hún er nýr borgarstjóri og ætlar sér stóra hluti. Sindri fór í morgunkaffi til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, talaði um launin, störfin, framtíðarhorfur en kynntist líka persónulegu hliðinni á þessari kraftmiklu konu sem elskar hreyfingu, hollan mat og spilakvöld með fjölskyldunni. Innslagið má sjá hér að ofan.

Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur frestað réttaráhrifum ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um að stöðva þvottahússhluta ræstingafyrirtækisins Hreint ehf. í Kópavogi. Fyrirtækið má því áfram starfa um sinn án þess að hafa sótt um starfsleyfi.

Spyrnir gegn styrkingu krónunnar með fyrstu inngripunum í meira en eitt ár
Þrátt fyrir að hafa staðið fyrir talsverðum inngripum á gjaldeyrismarkaði í nokkur skipti undir lok vikunnar þegar Seðlabankinn keypti gjaldeyri til að stemma stigu við gengishækkun krónunnar þá var ekkert lát á risi hennar gagnvart helstu gjaldmiðlum. Gjaldeyrisinngripin voru þau fyrstu hjá Seðlabankanum í meira en eitt ár en skörp gengisstyrking krónunnar að undanförnu, meiri en sennilegt er að peningamálayfirvöld álíti æskilegt, er nokkuð á skjön við undirliggjandi stöðu þjóðarbúsins og spár um viðskiptahalla á komandi árum.

Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara
Bako Verslunartækni (BVT) er fyrirtæki sem stofnað var samhliða kaupum á tveimur félögum; Bako Ísberg og Verslunartækni og Geiri.