Þrettán stig á 35 sekúndum 10. desember 2004 00:01
Áhorfendum á leik Houston Rockets og San Antonio Spurs í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt þótti ekki mikið til McGradys koma þegar rúm mínúta var til leiksloka. Þá höfðu gestirnir í Spurs 10 stiga forystu, 74--64, og lítið sem ekkert sem benti til að það myndi breytast fyrir leikslok. Hægt og rólega tóku áhorfendur að týnast út úr höllinni í þeirri trú að þetta væri búið spil. Þá tók Tracy McGrady, leikmaður Rockets, til sinna ráða og skoraði 13 stig á síðustu 35 sekúndum leiksins. Hann skoraði fjórar þriggja stiga körfur í röð og þar af var ein sem tryggði Rockets eins stigs forystu þegar 1,7 sekúndur voru til leiksloka. "Ég vildi frekar taka þrist heldur en að jafna. Karfan var óvenju stór í kvöld," sagði McGrady. Áhlaup McGradys minnir um margt á gamla rispu frá Reggie Miller þegar hann skoraði átta stig á 8,9 sekúndum í sigurleik Indiana Pacers á New York Knicks, 107-105, í undanúrslitum Austurdeildarinnar 1995. "Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður og er frábær tilfinning," sagði McGrady. "Fyrir alla þá sem fóru snemma; þið misstuð af frábærum leik." Rockets hafði tapað sjö leikjum í röð gegn San Antonio Spurs og vann um leið þriðja leik sinn í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Jeff Van Gundy, þjálfari Rockets, var í skýjunum í leikslok. "Stundum þegar maður leggur hart að sér gerast kraftaverk," sagði Van Gundy. Tim Duncan sagði tapið hafa verið gríðarlega svekkjandi fyrir sína menn enda liðið með unnin leik í höndunum þegar ein mínúta var eftir. "Þeir spiluðu vel síðustu 50 sekúndurnar, sérstaklega Tracy. Þeir fundu leið að körfunni og sárt tap er staðreynd," sagði Duncan sem var bestur í liði Spurs, skoraði 26 stig og tók 18 fráköst. McGrady var besti maður vallarins með 33 stig, 8 fráköst og 5 stolna bolta. smari@frettabladid.is
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira