Ming og O´Neal með flest atkvæði 28. desember 2004 00:01
Miðherjarnir Yao Ming hjá Houston Rockets og Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hafa fengið flest atkvæði í kosningu byrjunarliða í Stjörnuleiknum í NBA-deildinni 2005 sem fer fram í Denver 20. febrúar. Fólkið kýs byrjunarliðin á vefsvæðinu nba.com og greinilegt að Kínverjar eru duglegir að kjósa því þeirra maður Yao Ming hefur fengið flest atkvæði allra leikmanna í deildinni. Hann hefur fengið 881.223 atkvæði og getur ekkert annað en meiðsli hans sjálfs komið í veg fyrir að hann verði í byrjunarliði vesturdeildarinnar í Stjörnuleiknum. Hann hefur fengið rúmlega 750 þúsund fleiri atkvæði en næsti miðherji, Brad Miller hjá Sacramento Kings. Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves og Tim Duncan hafa fengið flest atkvæði framherja í vesturdeildinni en sá sem veitir þeim harðasta keppni er Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks. Tracy McGrady hjá Houston Rockets og Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers eru síðan efstir á meðal bakvarða og þarf leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns á kraftaverki að halda til að geta skákað þeim. Shaquille O´Neal hefur fengið flest atkvæði allra í austurdeildinni og líkt og hjá Ming er hann öruggur með sæti í byrjunarliðinu. Ben Wallace, miðherji Detroit Pistons, kemur honum næstur en hann er tæplega 600 þúsund atkvæðum á eftir O´Neal. Vince Carter, sem er nýgenginn til liðs við New Jersey Nets, og Grant Hill hjá Orlando Magic eru efstir meðal framherja austurdeildarinnar en Hill mun koma til með að fá harða samkeppni frá Jermaine O´Neal, framherja Indiana Pacers. Hinn ungi LeBron James hjá Cleveland Cavaliers og Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers eru efstir meðal bakvarða í austurdeildinni en Dwayne Wade hjá Miami Heat og Steve Francis hjá Orlando Magic koma þar ekki langt á eftir.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira