Haukastúlkur fá liðsstyrk 25. september 2005 00:01
Kvennalið Hauka hefur fengið mikinn liðstyrk fyrir tímabilið en bikarmeistararnir ætla sér stóra hluti í vetur og taka meðal annars fyrstir íslenskra kvennaliða þátt í Evrópukeppni. Haukaliðið mætir frönsku, spænsku og ítölsku liði í Evrópukeppninni en öll hafa þessi lið tvö bandaríska leikmenn innanborðs auk Evrópubúa. Haukar ætla samt bara að tefla fram einum Kana en fá auk þess til liðs við sig serbneska miðherjann Jelenu Jovanovic en þær eru væntanlegar fyrir fyrsta leik Hauka sem er gegn Breiðabliki í Hópbílabikarnum. Kesha Tardy eða Ke-ke eins og hún er kölluð er mörgum Íslendingum kunn en hún spilaði við mjög góðan orðstír hjá Grindavík veturinn 2003-4. Tardy skoraði þá 25,5 stig og tók 11,7 fráköst að meðaltali í deildinni og Grindavíkurliðið vann 7 af 10 leikjum sínum með hana innanborðs en hafði tapað 8 af 10 leikjum fyrir komu hennar. Í úrslitakeppninni tapaði Grindavík í oddaleik í undanúrslitum gegn verðandi Íslandsmeisturum Keflavíkur sem töpuðu bara einum leik í úrslitakeppninni, gegn Grindavík þar sem Tardy skoraði 31 stig og tók 20 fráköst í 65-62 sigri. Tardy er 24 ára og 185 sm hár framherji sem var valinn í WNBA-deildina af San Antonio á sínum tíma en náði ekki að tryggja sér sæti í liðinu. Hún útskrifaðist úr Louisiana State-háskólanum vorið 2003 þar sem hún skoraði 8,1 stig og tók 3,5 fráköst að meðaltal á fjórum árum sínum við skólann. Jelena Jovanovic er 27 ára og 187 sm miðherji sem hefur öðlast mikla reynslu sem leikmaður í Frakklandi, Sviss, Makedóníu og Serbíu en síðast lék hún með La Roche sur Yon Vendée BC í frönsku 1. deildinni. Árið áður lék hún með Limoges ABC í frönsku úrvalsdeildinni og var þar með 8,7 stig og 9,5 fráköst að meðaltali í leik. Hún hefur orðið bikarmeistari með sínu liði í Serbíu og tvöfaldur meistari þegar hún lék í Makedóníu en Jovanovic var í 18 ára landsliði Júgóslavíu á sínum tíma.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira