Waller sendur aftur til sín heima 1. febrúar 2005 00:01
Haukar hafa rekið John Waller, annan bandaríska leikmann liðsins, í Intersportdeildinni í körfubolta og leita nú að nýjum leikmanni í hans stað en liðið er komið niður í harða fallbaráttu og mætir næst Keflavík á Ásvöllum á sunnudaginn. Waller sem lék vel fyrir jól og var meðal annars efstur í þriggja stiga skotnýtingu í deildinni eftir fyrri umferðina hefur verið nánast óþekkjanlegur á nýja árinu. Meðalskorið hans hefur meðal annars lækkað um 10 stig í leik, hann er að hitta 27% verr úr skotum sínum og þá var hann að leggja til liðsins aðeins 36% af því sem hann gerði í 11 leikjum liðsins fyrir jól. Á heimasíðu Haukanna kemur eftirfarandi fram um málið. "John lék mun betur fyrir áramót en hann hefur gert í janúar og ekki lagt sig nægjanlega fram í að laga alvarlega stöðu liðsins. Niðurstaðan er því að John hættir að leika með liðinu og hverfur heim á leið á allra næstu dögum. Nú þegar verður farið í að leita að leikmanni í staðinn fyrir John," segir á síðunni en Haukar hafa tapað þremur af fjórum leikjum sínum eftir áramótin og þar á meðal báðum heimaleikjum sínum á Ásvöllum. Haukar höfðu fyrir það unnið 18 af 21 leik á heimavelli sínum í Hafnarfirði. Waller er annar leikmaðurinn sem Haukar senda heim í vetur en Damon Flint fór sömu leið í jólafríinu. John Waller - allt annar maður eftir jól Stig í leik: 23,4 - 13,0 (-10,4) Framlag í leik: 26,7 - 9,5 (-17,2) Skotnýting: 53% - 26% (-27%) 3ja stiga körfur í leik: 3,0 - 1,0 (-2,0) 3ja stiga nýting: 50% - 15% (-35%)
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira