Verða þeir aftur endurræstir af ÍR 22. mars 2005 00:01
Þeir sem urðu vitni af frábærum 26 stiga sigri Keflvíkinga í Seljaskólanum í undanúrslitum úrslitakeppni Intersportdeildarinnar á mánudagskvöldið eru örugglega margir á því að þar fari verðandi Íslandsmeistarar mæti Keflavíkurliðið jafneinbeitt og ákveðið til leiks það sem eftir líður úrslitakeppni. Í stað þess að komast í 2-0 eru ÍR-ingar komnir aftur á byrjunarreit og þurfa að vinna aftur í Keflavík þar sem Keflvíkingar höfðu unnið 13 leiki í röð í úrslitakeppninni fyrir sigur ÍR á Sunnubrautinni um síðustu helgi. Keflvíkingar hafa mikla reynslu frá úrslitaleikjum síðustu ár, ómetanlega reynslu úr úrslitakeppninni og stóra og mikla stuðningssveit sem setti mikinn svip á Seljaskólann í fyrrakvöld. Það er ekki langt síðan tap fyrir ÍR endurræsti einbeitingu og sigurvilja Keflavíkurliðsins, sem var þá eins og nú undir stjórn hins sigursæla þjálfara Sigurðar Ingimundarsonar. Fyrir tveimur árum unnu ÍR-ingar "óvæntan" 17 stiga sigur sigur á Keflavík í öðrum leik átta liða úrslitanna í Seljaskóla og tryggðu sér oddaleik í Keflavík tveimur dögum síðar. Líkt og Seljaskóla í fyrrakvöld komu Keflvíkingar gríðarlega einbeittir í þriðja leikinn, ÍR-ingar byrjuðu reyndar ágætlega og voru yfir 15-11 eftir 5 mínútna leik en þá hófst ein rosalegasta skotsýning sem hefur farið fram á fjölum Íþróttahússins við Sunnubraut. Keflavíkurliðið vann síðustu 15 mínútur hálfleiksins með 46 stigum, 59-13. Á þessum kafla skoraði Keflavíkurliðið meðal annars 12 þriggja stiga körfur og leiddi með 42 stigum í hálfleik, 70-28. Keflavík vann leikinn á endanum með 31 stigi og leit ekki um öxl í úrslitakeppninni. Liðið vann alls sjö leiki í röð, skoraði yfir 100 stig í þeim öllum og burstaði bæði Njarðvík (3-0) og Grindavík (3-0) og vann Íslandsmeistaratitilinn. Hver veit nema Breiðhyltingar hafi kveikt neistann á ný í Keflavíkurhraðlestinni með því að vinna þá í Keflavík á laugardaginn var, því svar liðsins í Seljaskóla minnti mikið á leik Keflavíkurliðsins fyrir tveimur árum þegar þeir settu met með því að vinna sjö leiki í röð í einni úrslitakeppni. Næsti leikur fer fram í Keflavík á laugardaginn og þar er að sjá hversu sterkir ÍR-ingar eru, því það er ekki á færi margra liða að vinna tvo leiki í röð í Keflavík.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira