Hann er lítill fjarsjóður 18. júní 2005 00:01 „
Ég lít á það sem lítinn fjarsjóð að geta valið leikmann með þennan persónuleika og þessa hæfileika í mitt lið,“ sagði Carlos Alberto Perreira eftir leik Brasilíu gegn Grikklandi í álfukeppninni sem nú stendur yfir í Þýskalandi. Leikmaðurinn sem hann átti við var Robinho, nýjasta stjarnan í brasilískum fótbolta og sá hinn sami og hefur verið orðaður við flest stærstu lið heims á síðasta ári. Robinho var ótrúlegur í þessum fyrsta leik sínum á evrópskri grund og réðu Evrópumeistarar Grikkja ekkert við pilt í leiknum. Robinho skoraði eitt og lagði upp annað mark í öruggum 3-0 sigri en hefði á góðum degi getað skorað þrjú mörk til viðbótar. „Hann er ennþá mjög ungur og á enn eftir að læra margt. En hann er að nálgast þá bestu í heiminum,“ sagði Perreira ennfremur um hinn 21 árs gamla Robinho sem leikur með liði Santos í heimalandi sínu. Það kom því ekki á óvart þegar fregnir bárust skömmu eftir leikinn um að Real Madrid hefði hækkað tilboð sitt í Robinho og hefur upphæðin í því sambandi verið nefnd um 15 milljónir punda. Juan Figer, umboðsmaður leikmannsins, segir rétt að Real hafi sýnt mikinn áhuga upp á síðkastið en að ekki hafi verið skrifað undir neina samninga. Sjálfur er Robinho hinn rólegasti og segir það alveg nóg að vera orðaður við lið á borð við Real Madrid. „Það gerir mig mjög stoltan og ég þakka guði fyrir að sýna mér þann heiður. En hann er líka sá eini sem veit hvar ég spila fótbolta í framtíðinni,“ segir Robinho sem kveðst munu gera það sem hentar fjölskyldu hans best. Eins og áður segir hafa mörg önnur lið borið víurnar í Robinho eins og til dæmis Chelsea, Barcelona, AC Milan og Inter. Adriano, framherji þess síðastnefnda, lék fyrir framan Robinho með Brasilíu í leiknum gegn Grikklandi og var það nóg til að sannfæra hann um að stjórnarmenn Inter ættu að gera allt til að fá hann til félagsins. „Ég hef talað við Robinho og hann vill fara til Evrópu. Auðvitað vill ég fá hann til Inter. Þetta er hæfileikaríkasti knattspyrnumaður í heimi.“
Íslenski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Sjá meira