Helgi Jónas breytir miklu 2. mars 2005 00:01
Vegna meiðsla hefur Helgi Jónas Guðfinnsson aðeins spilað fimm leiki með Grindavík í Intersportdeildinni í körfubolta í vetur en þegar þessi 29 ára bakvörður er í leikmannahópi liðsins má finna mikil batamerki á leik liðsins. Gengi Grindavíkur í vetur hefur verið ein samfelld hrakfallasaga og eftir að hafa unnið 35 af 44 leikjum og verið í tveimur efstu sætunum síðustu tvö tímabil er Grindavíkurliðið enn að berjast fyrir sæti inn í úrslitakeppnina í ár og hefur tapað einum leik fleira en liðið hefur unnið. Það skiptir því miklu máli að reynslumikill leikmaður eins og Helgi Jónas geti hjálpað til að rétta af skútuna því allir eru sammála um að Grindvíkingar hafi yfir góðum mannskap að ráða, mannskap sem gæti komist langt smelli liðið saman. Tölfræðin er líka sterk þegar kemur að mikilvægi Helga Jónasar. Grindavík hefur þannig unnið 4 af 5 leikjum sem Helgi Jónas hefur verið með í, þar á meðal þá tveir síðustu gegn ÍR og KFÍ, en hefur aðeins unnið 6 af hinum 16 leikjum liðsins án hans. Það má sjá mun á mörgum tölfræðiþáttum í þeim leikjum sem Helgi Jónas hefur tekið þátt í, töpuðu boltarnir eru þannig mun færri, liðið skorar meira, fær færri stig á sig og frákastar betur líkt og sést vel í töflunni sem fylgir. Það má heldur ekki gleyma því að Helgi og Páll Axel Vilbergsson ná vel saman og Páll fær mun betri skot með Helga sér við hlið eins og sést á því að Páll skorar fleiri þriggja stiga körfur og hittir 13,5% betur fyrir utan þriggja stiga línuna en þegar Helgi Jónas er ekki með. Mikill munur þegar Helgi Jónas er með:Mismunur (Með - án Helga Jónasar)Sigurhlutfall: +42,5% (80% - 37,5%) Stigaskor: +3,8 (95,4 - 91,6) 3ja stiga skotnýting: +5,2% (39,3% - 34,1%) 3ja stiga körfur í leik: +1,2 (9,6 - 8,4) Tapaðir boltar í leik: -4,9 (13,6 - 18,5) Hlutfall frákasta: +3,5% (53,2% - 49,7%) Stigaskor mótherja: -9,1 (87,2 - 96,3) Skotnýting mótherja: -3,1% (44,5% - 47,6%) Áhrifin á Pál Axel Vilbergsson:Mismunur (Með - án Helga Jónasar)Stig í leik: -0,3 (19,4 - 19,7) Skotnýting: +2,4% (44,1% - 41,7%) 3ja stiga skotnýting: +13,5% (48,8% - 35,3%) 3ja stiga körfur í leik: +1,1 (4,4 - 3,3)
Körfubolti Mest lesið Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Sjá meira