Hildur með stórleik fyrir Jämtland 7. mars 2005 00:01
Hildur Sigurðardóttir, körfuknattleikskona með sænska liðinu Jämtland, kvaddi áhorfendur á heimavelli sínum með stæl þegar liðið mætti Sallén. Hildur skoraði 22 stig í leiknum og átti stóran þátt í sigri gestgjafanna. Lokatölur urðu 95-69 en Jämtland náði ekki sæti í úrslitakeppninni og leiktíðin því nánast á enda. Eftir að úrslitasætið var úr sögunni ákvað félagið að endurnýja ekki samninginn við Hildi og Dionne Brown, sem var einnig atvinnumaður hjá liðinu. Hildur sagði í samtali við sænska blaðið Länstidningen að hún hefði, ólíkt Brown, ákveðið að leika síðasta leikinn áður en hún héldi á braut. "Mér líkar mjög vel hér og þess vegna vildi ég spila síðasta heimaleikinn," sagði Hildur og bætti því við að hún útilokaði ekki að halda áfram hjá Jämtland. "Eins og er held ég öllu opnu en ég verð fyrst að sjá hvernig liðið verður á næsta ári. Það er alveg mögulegt að ég verði áfram enda líkar mér mjög vel hér." Hasse Widell, þjálfari Jämtland, sagðist vilja halda Hildi í Svíþjóð. "Hún hefur staðið sig frábærlega hér en á næsta tímabili verðum við að fá einn bakvörð til viðbótar til að létta undir með henni. Það er erfitt að spila 40 mínútur í hverjum leik," sagði Widell. Hildur sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með gengi liðsins. "Við hefðum átt að komast í úrslit með þetta lið," sagði Hildur. "Það fór eitthvað úrskeiðis eftir áramót en við vitum ekki alveg hvað það var." Lokaleikur Jämtland verður gegn 08 Stockholm annað kvöld.
Körfubolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Sjá meira