Toppað á réttum tíma 16. mars 2005 00:01
Úrslitakeppnin í 1. deild kvenna í körfuknattleik hefst í kvöld. Í Keflavík tekur heimaliðið á móti ÍS en Haukar sækja Grindavík heim. Tvo sigurleiki þarf til að tryggja þátttökurétt í úrslitunum. Keflavíkurstúlkur hafa átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og stefna ótrauðar á sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð. Keflavík landaði einum titli í vetur er liðið vann Hópbílabikarinn. Keflavíkurstúlkur voru síðan óvænt slegnar út úr bikarkeppni KKÍ og Lýsingar af Haukum sem fóru alla leið og fögnuðu sigri í keppninni. Það er hugur í Stúdínum að komast alla leið að þessu sinni en liðið hefur mætt Keflavík tvisvar í bikar og fjórum sinnum í deild. Af þessum leikjum hefur ÍS unnið einn leik en liðið telur sig engu að síður getað toppað á réttum tíma og borið sigur úr býtum í úrslitakeppninni. Grindavík hefur átt í basli í vetur og neyddust til að skipta um erlendan leikmann stuttu fyrir úrslitakeppnina eftir að Myriah Spence þurfti frá að hverfa vegna meiðsla. Í hennar stað kom Rita Williams, fyrrum leikmaður í bandarísku WNBA-deildinni, en hún náði aðeins að leika einn leik með Grindavík í deildinni þar sem hún skoraði 17 stig, tók 8 fráköst og stal 4 boltum. Haukastúlkur skipa spútnik-lið vetrarins og hefur árangur liðsins komið á óvart. Liðið varð fyrir blóðtöku þegar Svanhvít Skjaldardóttir sleit krossbönd og verður hún ekkert meira með í vetur. Það eru þó gleðitíðindi fyrir áhangendur liðsins að Ösp Jóhannsdóttir er orðin heil heilsu og verður með gegn Grindavík í kvöld.
Körfubolti Mest lesið Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Fleiri fréttir Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Sjá meira