NBA í nótt 17. mars 2005 00:01
Fjölmargir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Meistarar Detroit Pistons lögðu lið Seattle 102-95 á heimavelli sínum, þar sem Chauncy Billups var stigahæstur með 32 stig. San Antonio notaði öflugan sprett í byrjun leiks til að gera út af við Minnesota Timberwolves með aðalstjörnu sína Tim Duncan í fantaformi, en hann skoraði 25 stig, hirti 14 fráköst, gaf 6 stoðsendingur og varði 5 skot. San Antonio réði ferðinni allan leikinn og hittu úr 12 af fyrstu 15 skotum sínum utan af velli og lögðu þar með grunninn að sigrinum. Orlando Magic tapaði sínum sjötta leik í röð þegar liðið lá fyrir LA Clippers á útivelli 110-102. Corey Magette var stigahæstur heimamanna með 31 stig, en nýliðinn Dwight Howard var atkvæðamestur í Orlando liðinu með 29 stig, sem er hans besti árangur í vetur og hirti 12 fráköst. Boston liðinu gengur allt í haginn þessa dagana og í nótt sigruðu þeir Toronto Raptors 110-109 í rafmögnuðum leik þar sem úrslitin réðust á síðustu sekúndunni þegar Ricky Davis hjá Boston varði sniðskot frá Milt Palacio sem hefði geta tryggt Kanadaliðinu sigurinn. Þeir félagar Paul Pierce og Antoine Walker voru stigahæstir í liði Boston með 24 stig, en Jalen Rose var með 35 fyrir Raptors. Utah Jazz tapaði sínum sjöunda leik í röð í nótt, nú síðast fyrir Indiana Pacers 104-82 og það virðist ætla að taka langan tíma fyrir Jerry Sloan, þjálfara Jazz að komast upp fyrir Red Auerbach í sigrum á ferlinum, því hann vantar einn sigur upp á að jafna hann í 6. sæti yfir þjálfara með flesta sigurleiki á ferlinum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana með 28 stig. Houston Rockets eru eitt af heitustu liðum deildarinnar í dag og í nótt tóku þeir vængbrotið lið Portland í nefið 108-77. David Wesley og Bob Sura voru stigahæstir í Texasliðinu með 21 stig hvor. New Jersey sigraði spútniklið Chicago Bulls nokkuð örugglega 100-84 með Vince Carter sem sinn besta mann. Carter skoraði 30 stig í leiknum og hefur öðlast nýtt líf eftir að hann losnaði frá Canada. Hrakfarir Cleveland Cavaliers á útivelli halda áfram og í nótt tapaði liðið sínum áttunda leik í röð á útivelli fyrir lágt skrifuðum Milwaukee Bucks 96-88. 34 stig frá LeBron James nægðu Cavs ekki í leiknum, en það var Michael Redd sem var stigahæstur í liði heimamanna með 32 stig.
Körfubolti Mest lesið Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Fleiri fréttir Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Sjá meira