Suns vinna kyrrahafsriðilinn 31. mars 2005 00:01
Phoenix Suns tryggðu sér í nótt sigur í kyrrahafsriðlinum í NBA deildinni í körfubolta, þegar liðið valtaði yfir Philadelphia 76ers 116-87, en á meðan töpuðu Sacramento Kings fyrir Detroit Pistons og geta því ekki náð Suns í riðlinum. Það skipti Phoenix litlu máli í nótt að vera aftur án Amare Stoudamire, sem er að jafna sig af meiðslum, því að eftir að jafnræði var með liðunum framan af, settu Suns í fluggírinn og keyrðu yfir lánlausa 76ers sem misstu Chris Webber meiddan af velli í þriðja leikhluta. Leikurinn var sögulegur fyrir þær sakir að Steve Nash náði sinni annari þreföldu tvennu á ferlinum og sinni fyrstu hjá Phoenix Suns, þegar hann skoraði 12 stig, hirti 13 fráköst og gaf 12 stoðsendingar án þess að spila nærri allan leikinn, en þess má til gamans geta að þessi lágvaxni bakvörður var kominn með 11 fráköst í fyrri hálfleik. Annar leikmaður komst í sögubækurnar í gær, en Quentin Richardson fór yfir 200 þriggja stiga körfu múrinn á tímabilinu og sló þar með félagsmet Dan Majerle, sem einmitt var viðstaddur leikinn og sló á létta strengi þegar metið féll með því að þurrka ímynduð tár af vöngum sér. Það var Shawn "The Matrix" Marion sem var atkvæðamestur Suns í leiknum í nótt og skoraði 26 stig og hirti 9 fráköst, en liðið leikur flesta af leikjunum sem eftir eru á keppnistímabilinu á heimavelli og því má telja ansi líklegt að liðið landi efsta sætinu í deildinni þegar í úrslitakeppnina er komið eftir tæpan mánuð.
Körfubolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Hermann hættur með ÍBV Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Sjá meira