Þrjú erlend lið með áhuga 17. apríl 2005 00:01
Körfuboltakappinn Hlynur Bæringsson, sem hefur verið lykilmaður í frábæru gengi Snæfells undanfarin tvö ár í Intersportdeildinni, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann hefði í hyggju að reyna að komast að hjá erlendum liðum á næsta tímabili. Hlynur var valinn besti leikmaður deildarinnar í fyrra og fylgdi því eftir með frábæru tímabili í ár. Hann þurfti hins vegar að horfa á eftir Íslandsmeistaratitlinum bæði árin til Keflavíkur. Hlynur sagði að hann vissi af þremur liðum sem hefðu sýnt honum áhuga. "Ég veit að spænskt úrvalsdeildarlið hefur áhuga á því að fá mig og lána mig til liðs sem það á í neðri deildunum. Ég þyrfti því að sanna mig sem væri hið besta mál. Síðan veit ég líka af liðum í Hollandi og Þýskalandi en ég á eftir að skoða það nánar. Deildirnar í Evrópu eru enn í fullum gangi þannig að þetta skýrist ekki strax." Hlynur sagði það lengi hafa verið draum sinn að hafa atvinnu að því að spila körfubolta enda væri lítill möguleiki á því á Íslandi. "Ég vil æfa tvisvar á dag til að verða betri leikmaður og þá þýðir lítið annað en að fara eitthvert út. Það er ekki hægt að æfa tvisvar á dag hér landi, þykjast vera atvinnumaður og eiga varla fyrir mat." Hlynur sagði þetta líka ágætis leið til að sleppa við Keflavík. "Ég er orðinn þreyttur á þeim því að við töpum alltaf fyrir þeim," sagði Hlynur. Aðspurður hvort hann ætti ekki bara að ganga til liðs við Keflavík fyrst hann gæti ekki unnið liðið sagði hann að sér yrði líklega slátrað í Stykkishólmi ef hann færi þangað. "Það er betra að fara út. Keflvíkingarnir elta mann varla þangað," spurði hann og hló
Körfubolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Körfubolti Fleiri fréttir Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Sjá meira