18 ára landsliðið vann A-liðið 30. apríl 2005 00:01
Fjögur íslensk unglingalandslið eru á leið á Norðurlandamót unglinga í körfubolta í næstu viku og hafa liðin fjögur verið að leggja lokahönd á undirbúning sinn. Meðal þessa hafa verið æfingaleikir og 18 ára landslið kvenna gerði sér þannig lítið fyrir og vann A-landsliðið í æfingaleik í Keflavík í gær, 68-65. Reyndar eru nokkrir af leikmönnum 18 ára landsliðsins þegar búnir að vinna sér sæti í A-liðinu en að öðru leyti var þarna samankomið A-landslið kvenna sem er á leiðinni á Smáþjóðaleikana um næstu mánaðamót. 18 ára landsliðið hafði forystuna stærsta hluta leiksins og náði meðal annars 12 stiga forskoti í lok fyrri hálfleiks en staðan í hálfleik var 33-40 fyrir 18 ára liðið. A-landsliðið tók sig á í seinni hálfleik og komst meðal annars yfir í 47-46 en þá svöruðu ungu stelpurnar með 12 stigum í röð og unnu að lokum þriggja stiga sigur eftir spennandi lokamínútur. Helena Sverrisdóttir átti mjög góðan leik hjá 18 ára liðinu, skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 13 stig og Bryndís Guðmundsdóttir var með 10 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá A-liðinu voru þær Signý Hermannsdóttir og Birna Valgarðsdóttir með 14 stig hvor og Hildur Sigurðardóttir skoraði 13 stig. Signý tók auk þess 11 fráköst og Hildur var með 10 fráköst (6 í sókn) og 4 stoðsendingar. 18 ára landsliðið er að stórum hluta skipað stúlkum sem urðu Norðurlandameistarar með 16 ára landsliðinu á síðasta ári en þjálfari þess er Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hauka og þjálfari ársins í 1. deild kvenna á síðasta tímabili.
Körfubolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Körfubolti Fleiri fréttir Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Sjá meira