Með tvöfalt hærri laun en Woudstra 2. júní 2005 00:01
Jakob Örn Sigurðarson, sem hefur gert það gott með háskólaliðinu sínu Birmingham Southern undanfarin ár, hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið BayerGiants Leverkusen um að leika með því næsta vetur. Að sögn umboðsmanns Jakobs, sem er faðir hans Sigurður Hjörleifsson, voru mörg lið í Evrópu á höttunum eftir stráknum. Lið frá Hollandi, Belgíu og Spáni höfðu sett sig í samband við Jakob og lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir. Jakob er fyrsti leikmaðurinn sem liðið fær til sín eftir miklar breytingar sem gerðar voru í kjölfar óviðunandi gengis á síðasta tímabili og er liðið stórhuga fyrir komandi tímabil, enda er Leverkusen lið með mikla sigurhefð. Þegar Fréttablaðið náði tali af Sigurði í gær var hann mjög ánægður með samninginn sem hann nældi í fyrir Jakob og sagði að samningur hans væri mjög ásættanlegur og nokkuð hár miðað við fyrsta atvinnumannasamning. „Jakob fékk mjög góðan samning og er til að mynda með um helmingi hærri laun en Bandaríkjamaðurinn Brandon Woudstra sem verður í þessu liði með honum," sagði Sigurður, en Woudstra þessi lék sem kunnugt er með Njarðvíkingum tímabilið 2003-04. „Margir furðuðu sig á því af hverju Leverkusen fékk sér ekki bara Bandaríkjamann, en þeir eru tiltölulega ódýrir á miðað við þá evrópsku, en þeir vildu aðeins fá Jakob og engan annan," sagði hinn seigi samningamaður Sigurður að lokum.
Körfubolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Sjá meira