Sport

Houllier vill fá Baros

Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Lyon í Frakklandi, hefur lýst yfir miklum áhuga á að fá Milan Baros til liðs við félagið í sumar. Houllier var maðurinn á bak við kaupin á Tékkanum unga til Liverpool á sínum tíma, en framtíð Baros hjá enska liðinu er talin óljós. "Ég hef lýst yfir áhuga mínum á að fá hann til Lyon og útsendari okkar mun fylgast með honum í landsleikjum á næstu dögum," sagði forseti Lyon í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×